Starfsleyfi og skráningar
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sér um útgáfu starfsleyfa fyrir starfsleyfisskyldan atvinnurekstur og staðfestir skráningar samkvæmt lögum og reglugerðum um hollustuhætti, mengunarvarnir og matvæli.
Áður en sótt er um leyfi/skráningu hjá Heilbrigðiseftirlitinu þarf að fá staðfestingu frá byggingarfulltrúa.
Athugið! Þegar um er að ræða veitingastaði þarf auk starfsleyfis að sækja um skráningu. Meira um leyfisveitingar Matvælaeftirlits.
Alþingi hefur ákveðið að leggja niður heilbrigðisnefndir og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga frá 1. janúar 2027 og færa verkefnin til ríkisins.
Umhverfis- og orkustofnun tekur við eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum og ný Stofnun atvinnuveganna við matvælaeftirliti, en óvissa er um önnur verkefni.
Í kjölfarið hefur öllu starfsfólki Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur verið sagt upp störfum. Breytingarnar hafa þegar haft töluverð áhrif á starfsemina og valdið þjónustuskerðingu.
Heilbrigðiseftirlitið starfar til ársloka 2026, en aukið álag og fækkun starfsfólks kallar á breytta forgangsröðun og lengri afgreiðslu- og svartíma.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta veldur og þjónustuþegar beðnir um að sýna stöðunni skilning.
Starfsleyfi eða skráning?
Hvað er starfsleyfisskylt og hvað er skráningarskylt?
Starfsleyfi
- Atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun samkvæmt viðauka IV í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og viðauka X í reglugerð 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit
- Atvinnurekstur og stofnanir sem veita almenningi þjónustu samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og reglugerð nr. 903/2024 um hollustuhætti
- Atvinnurekstur í framleiðslu eða dreifingu matvæla samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli.
Skráning
- Atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun samkvæmt viðauka við reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Skrá skal slíka starfsemi á www.island.is áður en starfsemi hefst. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur staðfestir þessar skráningar.
- Skilyrði fyrir skráningarskylda starfsemi
Áður en sótt er um
Rekstraraðila ber að sækja um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eða skrá starfsemi sína á island.is áður en starfsemi hefst. Áður en sótt er um starfsleyfi eða skráningu skal umsækjandi fá staðfestingu byggingarfulltrúa á að húsnæði og starfsemi sé í samræmi við skipulag og ákvæði byggingarreglugerðar. Umsækjandi skal jafnframt hafa gengið úr skugga um að húsnæðið og starfsemin sem ætlunin er að starfrækja starfsemi í, sé í samræmi við síðustu samþykktu teikningar af húsnæðinu.
Hvernig er ferlið?
Þegar fullnægjandi umsókn um starfsleyfi eða skráningu hefur borist frá rekstraraðila ásamt áskildum fylgigögnum, þ.m.t. upplýsingar um rekstraraðila, lýsing á starfsemi og umfangi hennar, upplýsingar um innra eftirlit og staðfesting byggingarfulltrúa, ásamt öðrum gögnum í samráði við heilbrigðisfulltrúa, verður umsókn tekin til vinnslu. Athugið að vinnsla hefst ekki fyrr en öll gögn hafa borist Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Hluti af vinnslu starfsleyfis er að komið er í eftirlit í starfsstöð umsækjanda þar sem farið er yfir starfsemi, húsnæði, búnað o.fl.
Umsóknin er lögð fyrir afgreiðslufund Heilbrigðiseftirlitsins (að loknum auglýsingatíma þegar við á) til afgreiðslu. Afgreiðslufundir eru vikulega á fimmtudögum.
Auglýsingar
Heimilt er að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi og veita frest til athugasemda ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif.
Auglýst er á vefsvæði Heilbrigðiseftirlitsins. Á auglýsingatíma má hver sem vill senda efnislegar athugasemdir við tillöguna á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.
Hvernig fæ ég útgefið starfsleyfi eða staðfestingu á skráningu?
Heilbrigðiseftirlitið sendir tilkynningu um samþykkt leyfisins ásamt reikningi fyrir leyfið. Starfsleyfi tekur gildi og skráning er staðfest þegar reikningur hefur verið greiddur. Leyfisbréfið er sent til leyfishafa. Óheimilt er að hefja starfsleyfisskylda/skráningarskylda starfsemi fyrr en leyfið/staðfesting hefur tekið gildi.
Gjaldskrá
Innheimt er gjald fyrir gerð starfsleyfis/staðfestingu auk gjalda fyrir heilbrigðiseftirlit.
Upplýsingar um gjöld er að finna í gjaldskrá fyrir mengunar- og heilbrigðiseftirlit í Reykjavíkurborg.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
Hægt er að senda fyrirspurnir, ábendingar og kvartanir í gegnum form á Mínum síðum.