Starfsleyfi og skráningar
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sér um útgáfu starfsleyfa fyrir starfsleyfisskyldan atvinnurekstur og staðfestir skráningar samkvæmt lögum og reglugerðum um hollustuhætti, mengunarvarnir og matvæli.
Starfsleyfi eða skráning?
Hvað er starfsleyfisskylt og hvað er skráningarskylt?
Starfsleyfi
- Atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun samkvæmt viðauka IV í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og viðauka X í reglugerð 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit
- Atvinnurekstur og stofnanir sem veita almenningi þjónustu samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir
- Atvinnurekstur í framleiðslu eða dreifingu matvæla samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli.
- Sjá nánar um leyfisveitingar hjá Matvælaeftirlitinu
- Sjá nánar um leyfisveitingar hjá Umhverfiseftirlitinu
Skráning
- Atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun samkvæmt viðauka við reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Skrá skal slíka starfsemi á www.island.is áður en starfsemi hefst. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur staðfestir þessar skráningar.
Áður en sótt er um
Eitt af skilyrðum fyrir skráningu og útgáfu starfsleyfis er að starfsemin sé í samræmi við skipulag og að húsnæðið sé samþykkt af byggingafulltrúa fyrir viðkomandi starfsemi.
Umsókn um starfsleyfi og skráning á starfsemi
Rekstraraðila ber að sækja um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eða skrá starfsemi sína á island.is áður en starfsemi hefst.
Ferli umsóknar/skráningar
Heilbrigðiseftirlitið setur innkomnar umsóknir og skráningar í vinnslu samkvæmt verkferli. Umsóknin er lögð fyrir afgreiðslufund til samþykktar. Að fundi loknum er umsækjanda tilkynnt um afgreiðslu málsins og reikningur sendur í heimabanka. Afgreiðslufundir eru að jafnaði haldnir vikulega á fimmtudögum.
Gjaldskrá
Innheimt er gjald fyrir gerð starfsleyfis/staðfestingu auk gjalda fyrir heilbrigðiseftirlit.
Upplýsingar um gjöld er að finna í gjaldskrá fyrir mengunar- og heilbrigðiseftirlit í Reykjavíkurborg.
Auglýsingar - starfsleyfistillögur vegna mengandi starfsemi
Umsóknir vegna mengandi starfsemi samkvæmt reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit eru settar í vinnslu og í framhaldinu auglýstar í 4 vikur sbr ákvæði í reglugerðinni.
Hvernig fæ ég útgefið starfsleyfi eða staðfestingu á skráningu?
Starfsleyfi tekur gildi og skráning er staðfest þegar reikningur hefur verið greiddur. Leyfisbréfið er sent til leyfishafa. Óheimilt er að hefja starfsleyfisskylda/skráningarskylda starfsemi fyrr en leyfið/staðfesting hefur tekið gildi.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
Hægt er að senda fyrirspurnir, ábendingar og kvartanir í gegnum form á Mínum síðum.