Undanþágur vegna starfsleyfa
Hér eru birtar undanþágur sem umhverfis- orku, og auðlindaráðherra hefur veitt frá einstökum greinum reglugerða sbr. 41. gr. nr. 7/1998 og 74. gr. reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002, eftir atvikum að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar og Umhverfisstofnunar.
Einnig eru birtar viðeigandi eftirlitsskýrslur sbr. tilmæli ráðuneytis.
Undanþágur í gildi
KSÍ - Reykjavegur 15 (grunnskólastarfsemi)
Hagaskóli - Ármúli 30
Hagaskóli - Hótel Saga
Undanþágur úr gildi
Kappar ehf. - niðurrif við Tryggvagötu/Grófina
Fisfélag Reykjavíkur - niðurrifs húsnæðis við Úlfarsfell
MT Ísland ehf. - niðurrif á asbesti að Ármúla 6
Í ljósi umsagna Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur (HER) og í samræmi við 1. mgr. 6. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir og 4. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, hefur Umhverfis- , orku- og loftslagsráðuneytið (URN) veitt MT Ísland ehf. kt. 4711119-0160 tímabundna undanþágu frá starfsleyfi vegna niðurrifs á asbesti í skrifstofuhúsnæði að Ármúla 6, jarðhæð, í Reykjavík (sjá meðfylgjandi bréf URN og eftirlitsskýrslu HER). Undanþága þessi gildir þar til starfsleyfi hefur verið gefið út en þó eigi lengur en til 16. september 2022.
Úttekt Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Undanþága - bréf umhverfis- orku, og auðlindaráðuneytisins
Tillaga að starfsleyfi í auglýsingu