Þjónustu- og nýsköpunarsvið
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er eitt af þremur kjarnasviðum Reykjavíkurborgar. Meginhlutverk sviðsins er að annast innri og ytri þjónustu, leiða stafræna umbreytingu og stuðla að nýsköpun í starfsemi borgarinnar.
Um sviðið
Þjónustu- og nýsköpunarsvið sinnir fjölbreyttum verkefnum og ráðgjöf fyrir öll svið og skrifstofur, undirstofnanir, starfsfólk, íbúa og gesti borgarinnar. Sviðið starfar þvert á fagsvið borgarinnar og ber til að mynda ábyrgð á upplýsingatækni, gagnastjórnun, skjalamálum, tæknilegum umbótum og þjónustu. Þá leiðir sviðið innleiðingu á gildandi þjónustustefnu Reykjavíkurborgar og er borgaryfirvöldum til faglegrar ráðgjafar í þeim málaflokkum sem undir sviðið heyra. Samhliða ber sviðið ábyrgð á rekstri þjónustuvers, stjórnsýslubygginga og Borgarskjalasafns.
Starfseiningar
Þjónustu- og nýsköpunarsvið skiptist í fimm skrifstofur auk Borgarskjalasafns Reykjavíkur. Skrifstofurnar gegna allar ólíku hlutverki en mynda þó eina sterka heild þar sem mikil áhersla er lögð á skapandi samvinnu, gagnkvæmt traust og virðingu.
Stafræn Reykjavík
Ber ábyrgð á verkefna- og vörustýringu stafrænna verkefna, vefmálum, gæða- og áhættustýringu, samskiptamálum, stjórnsýslu- og lögfræðiþjónustu. Heldur einnig utan um teymi stafrænna leiðtoga og starfsemi verkefnaráðs sem ákveður hvaða verkefni skulu tekin fyrir í stafrænni umbreytingu.
Skrifstofustjóri er Þröstur Sigurðsson.
Skrifstofa þjónustu- og umbreytinga
Ber ábyrgð á samræmdri framlínuþjónustu Reykjavíkurborgar, rekstri þjónustuvers og rekstrarþjónustu stjórnsýsluhúsanna. Sér um innleiðingu þjónustustefnu borgarinnar og leiðir stafræna umbreytingu á þjónustu og endurhönnun á þjónustuferla.
Skrifstofustjóri er Arna Ýr Sævarsdóttir.
Gagnaþjónustan
Ber ábyrgð á gagnastjórnun og hagnýtingu gagna í starfsemi borgarinnar. Markmið Gagnaþjónustunnar er að auka gagnavitund innan borgarinnar og vera drifkraftur í hagnýtingu upplýsinga til ákvarðanatöku og bættrar þjónustu við starfsfólk, íbúa og fyrirtæki borgarinnar.
Skrifstofustjóri er Inga Rós Gunnarsdóttir.
Skrifstofa upplýsinga- og skjalastýringar
Er skrifstofum fag- og kjarnasviða til ráðgjafar í verkefnum varðandi upplýsinga- og skjalamál. Ber ábyrgð á faglegri þróun mála- og skjalavistunarkerfisins GoPro og miðlæga upplýsingastjórnunarkerfisins Hlöðunnar. Skrifstofan ber einnig ábyrgð á innleiðingu, eftirliti og framkvæmd skjalastefnu Reykjavíkurborgar.
Skrifstofustjóri er Óskar Þór Þráinsson.
Upplýsingatækniþjónusta
Ber ábyrgð á rekstri upplýsingatækniinnviða og hugbúnaðarþróunar á virðisaukandi vörum fyrir svið Reykjavíkurborgar ásamt samskiptum og samningum við birgja.
Skrifstofustjóri er Ólafur Sólimann Helgason.
Borgarskjalasafn
Frá og með 1. janúar 2024 færðust eftirfarandi verkefni yfir til og á ábyrgð Þjóðskjalasafns Íslands: Afhending rafrænna gagna, rafrænn safnkostur, afhending pappírsskjalasafna og eftirlit og ráðgjöf. Þann 1. nóvember 2025 færast önnur verkefni og safnkostur Borgarskjalasafns yfir til og á ábyrgð Þjóðskjalasafns Íslands.
Þangað til er hægt að senda fyrirspurnir til Borgarskjalasafns á heimasíðu safnsins; borgarskjalasafn.is
Stefnuljós þjónustu- og nýsköpunarsviðs
Fólk í fyrsta sæti
Notendamiðuð hugsun – Samræmd þjónustupplifun – Einfaldleikinn í fyrirrúmi
Kjarni allrar okkar starfsemi miðar að því að einfalda fólki lífið. Öll þjónusta borgarinnar á að vera hönnuð út frá þörfum notenda hennar. Við vinnum saman sem samræmdur vinnustaður sem veitir heildstæða þjónustuupplifun gagnvart þeim sem til okkar leita.
Einu skrefi á undan
Sterkar stoðir – Greindar ákvarðanir – Framtíðarbestun
Við byggjum allt okkar starf á traustum grunni sérþekkingar. Við tökum greindar og gagnadrifnar ákvarðanir út frá fyrirliggjandi upplýsingum. Við hugsum nokkra leiki fram í tímann til að geta örugg tekist á við verkefni framtíðarinnar.
Aldrei hætta að þora
Kúltúrhakk – Skapandi umhverfi – Fyrirmyndir í verki
Við höfum hugrekkið til að taka af skarið og leiða breytingar í krefjandi aðstæðum. Við vinnum í skapandi umhverfi þar sem traust, endurgjöf og teymisstarf búa til nærandi jarðveg fyrir faglegan vöxt. Við erum fyrirmyndir í verki og leiðum með því að gera.
Ársskýrslur
Hafðu samband
Erindi og fyrirspurnir má senda í tölvupósti á thon@reykjavik.is.
Ábendingar varðandi þjónustu má senda í gegnum ábendingavef Reykjavíkurborgar.
Þjónustuver Reykjavíkurborgar er staðsett í Borgartúni 12-14. Opnunartími er frá 8:30-16:00 alla virka daga. Sími þjónustuvers er 411 1111.
Sviðsstjóri
Sviðsstjóri er Óskar J. Sandholt.
Skipurit