Heimaþjónusta
Starfsfólk heimaþjónustu veitir fólki stuðning sem gerir þeim kleift að búa heima eins lengi og það óskar, þrátt fyrir veikindi eða færniskerðingu.
Hvað er heimastuðningur?
Heimastuðningur er fyrir fólk sem á lögheimili í Reykjavík, er eldra en 18 ára, býr sjálfstætt og þarf stuðning vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags eða veikinda. Heimastuðningur er stuðningur við athafnir daglegs lífs, svo sem við að klæðast / hátta sig, sinna persónulegu hreinlæti, matast og nýta tækni við heimilishald og lyfjaeftirlit. Einnig félagslegur stuðningur, svo sem í gegnum skjáheimsóknir.
Á ég rétt á heimastuðningi?
Þú getur átt rétt á heimastuðningi ef þú þarft aðstoð vegna skertrar getu, álags, veikinda eða fjölskylduaðstæðna. Þjónustan er fyrir fólk sem á lögheimili í Reykjavík, er eldra en 18 ára og býr sjálfstætt.
Heimastuðningur var áður kallaður félagsleg heimaþjónusta og er veittur á grundvelli reglna Reykjavíkurborgar um stuðningsþjónustu.
Hvernig sæki ég um heimastuðning?
Þú sækir um heimastuðning á rafrænan hátt á Mínum síðum.
Einnig er hægt að fylla út umsókn á PDF-formi og senda á heima@reykjavik.is eða skila á miðstöð í þínu hverfi.
Ef þörf er á frekari gögnum, til dæmis læknisvottorði, verður haft samband við þig. Starfsfólk heilbrigðisþjónustu getur einnig sent inn beiðni, í samráði við þig, um heimastuðning telji það þörf á því.
Ef þig vantar frekari ráðgjöf þá getur þú bókað símtal hjá ráðgjafa.
Hvað gerist næst?
Þegar undirrituð umsókn um heimastuðning liggur fyrir er næsta skref að meta stuðningsþörf. Matið fer fram á heimili þínu og er unnið í náinni samvinnu við þig. Matið tekur mið af félagslegri stöðu þinni, aðstæðum og færni.
Við mat er litið til heildaraðstæðna. Ef matið leiðir í ljós að ekki er þörf á stuðningi eða að skilyrði eru ekki uppfyllt er umsókn synjað. Ef umsókn er samþykkt er gerð stuðningsáætlun í samráði við þig. Í henni kemur fram markmið stuðningsins, umfang hans og helstu verkefni.
Ef umsókn er synjað og þú telur sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir því að veita skuli þér undanþágu frá reglum getur þú sent inn beiðni um áfrýjun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs.
Er greitt fyrir þjónustuna?
Öll þjónusta er gjaldfrjáls nema greiða þarf fyrir þrif, þó aldrei meira en 6 skipti á mánuði. Fólk sem einungis hefur tekjur samkvæmt framfærsluviðmiði Tryggingastofnunar ríkisins eða þar undir þurfa ekki að greiða fyrir heimastuðning í formi þrifa.
Þegar heimastuðningur fer fram utan heimilis þarft þú að greiða kostnað sem hlýst af því.
Hvernig virkar þjónustan?
Þegar mat á á stuðningsþörf liggur fyrir og umsókn er samþykkt er ákveðið í samráði við þig hvernig stuðning þú þarft. Þá gætir þú fengið þjónustu t.d. frá Endurhæfingarteymi í Reykjavík eða hjá skjáveri sem veitir þjónustu með rafrænum hætti, svo sem skjáheimsóknir og vöktun sjálfvirkra lyfjaskammtara.
Heimahjúkrun
Heimahjúkrun er fyrir fólk sem þarf heilbrigðisþjónustu í heimahúsi. Hún felur í sér heilbrigðisþjónustu og eftirlit hjúkrunarfræðinga eða sjúkraliða og er veitt í náinni samvinnu við notendur og aðstandendur. Starfsfólk heilsugæslu eða sjúkrahúsa leggur mat á þörf fyrir heimahjúkrun og sendir beiðni um þjónustu í gegnum SÖGU.
Endurhæfing í heimahúsi
Fólk getur þurft aðstoð við að endurheimta og viðhalda virkni, heilsu og lífsgæðum. Með endurhæfingu í heimahúsi fær fólk þjálfun og ráðgjöf sem henta þörfum þeirra. Endurhæfingin fer að miklu leyti fram heima hjá þér eða í þínu nærumhverfi.
Velferðartækni
Reykjavíkurborg leggur áherslu á að prófa og innleiða velferðartækni í þjónustu við íbúa borgarinnar með það að markmiði að auðvelda fólki að búa lengur á eigin heimili við betri lífsgæði, þrátt fyrir öldrun, fötlun eða veikindi.
Félagslegur stuðningur vegna heilabilunar
Fólk með heilabilunarsjúkdóma og fjölskyldur þeirra þurfa oftar en ekki á auknum stuðningi að halda til að mæta ýmsum áskorunum í daglegu lífi.
Félagslegum stuðningi vegna heilabilunar er ætlað að létta álagi af heimilum fólks með heilabilunarsjúkdóm og bæta lífsgæði þess og aðstandenda.
Hvar fæ ég frekari upplýsingar?
Starfsfólk miðstöðva veitir upplýsingar um samræmda heimaþjónustu í síma 411 9600.