Hitt húsið

Miðstöð ungs fólks

 

Við bjóðum upp á skóltatengt frístundaúrræði fyrir ungmenni með fötlun á aldrinum 16-20 ára sem stunda nám á starfsbrautum framhaldsskólanna. Meginmarkmið starfsins er að stuðla að virkni og félagslegri þátttöku ungmenna í frístundum. Í starfinu er nærumhverfið notað til að þjálfa ungmennin í sjálfstæði, félagsfærni og samskiptafærni. Starfsemin byggir á einstaklingsmiðaðri þjónustu þar sem reynt er að vinna með styrkleika hvers og eins og ávallt er reynt að koma til móts við ólíkar þarfir og áhuga ungmennanna. 

Starfsemin fer fram milli klukkan 13-17 alla virka daga í Hinu Húsinu á Rafstöðvarvegi. Við tökum inn eftir umönnunarflokki 1 - 3 samkvæmt skilgreiningu Tryggingastofnunar og miðast umsókn þessi við upphaf haustannar 2019.