Heimilisofbeldi

Teikning af konu vökva plöntu sem maður var að gróðursetja.

Á þessari síðu eru upplýsingar um hvar megi leita sér aðstoðar og fá ráðgjöf búi fólk við heimilisofbeldi. Einnig eru upplýsingar fyrir gerendur, ýmsir bæklingar með efni um heimilisofbeldi sem gagnast einstaklingum og starfsfólki en sérstök áhersla er lögð á upplýsingar um eldra fólk og heimilisofbeldi.

Táknmynd fyrir aðstandendur
Öll eiga rétt á aðstoð og ofbeldi er aldrei brotaþola að kenna.

""
Mikilvægt er að gerendur ofbeldis leiti aðstoðar til að takast á við líf sitt.
""
Heimilisofbeldi gegn eldra fólki á sér margar birtingarmyndir.
""
Samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Kvennaathvarfsins, Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu og Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að bregðast við heimilisofebldi.
""
Heimilisofbeldi hefur áhrif á líf fólks, líka á þeirra vinnustað.
""
Hvað á að standa hér???

Aðstoð fyrir brotaþola

Öll eiga rétt á aðstoð og ofbeldi er aldrei brotaþola að kenna.

Ef þú býrð við ofbeldi eða hefur orðið fyrir ofbeldi, eða ef þú þekkir til einhvers sem er í þeim aðstæðum eru ýmis úrræði í boði.

Þú getur alltaf hringt í 112, og þú getur líka fengið aðstoð hjá ýmsum grasrótarsamtökum eða félagsþjónustunni.

Aðstoð fyrir gerendur

Heimilisfriður, meðferðar- og þekkingarmiðstöð um ofbeldi í nánum samböndum, býður gerendum ofbeldis í nánum samböndum upp á meðferð. Þjónustan sem Heimilisfriður er niðurgreidd af ríkinu. 

Öll sem leita til Heimilisfriðar byrja í einstaklingsviðtölum.

Lögð er áhersla á að viðkomandi þiggi aðstoðina af fúsum og frjálsum vilja.

Eldra fólk og ofbeldi

Heimilisofbeldi er ofbeldi á milli skyldra eða tengdra einstaklinga. Skyldir og tengdir einstaklingar eru t.d. núverandi eða fyrrverandi makar, börn, systkini og foreldrar.

Heimilisofbeldi gegn eldra fólki á sér margar birtingarmyndir. Sem dæmi getur ofbeldið verið andlegt, líkamlegt, kynferðislegt og fjárhagslegt en það getur einnig verið um vanrækslu að ræða.

Teikning af manni rétta barni tré til að gróðursetja.

Hvað er ofbeldi?

Heimilisofbeldi getur verið af ýmsum toga. 

Hér á eftir eru upplýsingar um helstu birtingarmyndir þess.

  • Líkamlegt ofbeldi: T.d. kýla, slá, sparka, hrinda.
  • Andlegt ofbeldi: T.d. hóta, skamma, ógna, niðurlægja, stjórna.
  • Kynferðisleg misnotkun: T.d. nauðgun eða kynferðisleg áreitni. Þegar fatlað fólk á í hlut á þetta einnig við athafnir sem fatlaður einstaklingur hefur ekki samþykkt/gæti ekki samþykkt vegna skerðingar eða var þvingaður til að samþykkja.
  • Fjárhagsleg misnotkun: Fjármunum haldið frá fólki/notaðir í ósamræmi við vilja einstaklings.
  • Efnisleg misnotkun: Eignaréttur ekki virtur, hlutir eyðilagðir.
  • Vanræksla: Aðstoð haldið frá viðkomandi, lyfjagjöf ekki sinnt sem skyldi o.fl.
  • Elta eða hóta: Að elta manneskju og sitja fyrir henni gegn vilja hennar - eltihrellir. Hótanir um að birta á netinu nektarmyndir – hrelliklám.
  • Ofbeldi sem felur í sér mismunun: Ofbeldi og áreitni sem beinist t.d. að uppruna, kyni, kynþætti, kynhneigð, kynvitund, skerðingu eða annarri stöðu viðkomandi.
  • Stafrænt ofbeldi: Þegar tækni s.s. sími, tölvupóstur eða samfélagsmiðlar er notuð til að beita ofbeldi. Þetta getur verið að senda stöðugt skilaboð í síma, birta nektarmyndir af viðkomandi í hennar/hans óþökk eða ef gerandi sendir óumbeðnar nektarmyndir af sér.
  • Heiðurstengt ofbeldi: Ofbeldi sem er framkvæmt í nafni „heiðurs“.
  • Þvingað hjónaband: Hjónaband sem annar eða báðir aðilar eru þvingaðir til að ganga í.
  • Limlesting á kynfærum kvenna: Fjarlægja kynfæri stúlkubarns eða konu að hluta eða öllu leyti.
Teikning af bekk og ruslatunnu á staur.

Starfsfólk og heimilisofbeldi

Hér eru upplýsingar fyrir starfsfólk sem býr við heimilisofbeldi, hægt er að skoða hvaða aðstoð má fá hjá vinnuveitanda. Einnig eru leiðbeiningar fyrir samstarfsfólk, hvernig er best að bregðast við ef það verður þess vart að samstarfsmanneskja býr við ofbeldi.

á myndinni sjást hendur í bláum og gulum vinnuhönskum að gróðursetja græðling. Til hliðar stendur rauð skófla.

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við Halldóru Dýrleifar Gunnarsdóttur, verkefnastýru Saman gegn ofbeldis ef þú vilt vita meira.

Velferðarsvið

Borgartún 12, 105 Reykjavík