Ef samstarfsfólk þitt býr við heimilisofbeldi – hvernig bregstu við.

Það getur verið erfitt fyrir fólk á vinnustað að tala um það ofbeldi sem það býr við. Velji brotaþoli að gera það þá er stuðningur samstarfsfólks mjög mikilvægur. Vert er að hafa í huga að gerendur eru stundum búnir að einangra brotaþola og þá getur vinnustaðurinn verið mikilvæg líflína.

Hér á eftir eru nokkur atriði sem hafa þarf í huga í samskiptum þegar samstarfsmanneskja segir frá ofbeldi sem hún/hann/hán býr við:

Sýndu skilning, ekki dæma brotaþola fyrir að hafa ekki komið sér í burtu eða hvað annað sem þessu tengist.

Sýndu stuðning, láttu vita að þú sért til staðar þurfi viðkomandi á þér að halda. 

Haltu trúnað ef eftir því er óskað.

Leggðu áherslu á öryggi.

Gefðu viðkomandi tíma og hlustaðu.

Farðu ekki fram á að viðkomandi færi sönnur fyrir ofbeldinu.

Ekki hafa samband við gerendann, það getur skapað aukna hættu fyrir brotaþola og sett þig í hættu.

Ekki þvinga viðkomandi til að leita sér aðstoðar, hver og einn þarf að finna þá þörf sjálf/sjálfur/sjálft. 

Ekki ganga inn í það hlutverk að vera ráðgjafi. Ef viðkomandi eða önnur samstarfsmanneskja er í bráðri hættu hringdu í 112.

Rannsóknir sýna að konur verða frekar fyrir ítrekuðu heimilisofbeldi en menn en það er samt mikilvægt að hafa í huga að menn verða einnig fyrir heimilisofbeldi og ofbeldi á sér einnig stað í hinsegin samböndum. 

Annað sem þarf að hafa í huga:

Ef brotaþoli hefur rætt ofbeldið við þig sem samstarfsmanneskju en finnst óþægilegt að ræða málið við yfirmann þá getur verið gott að stinga upp á því að brotaþoli ræði við einhvern frá mannauðs- og starfsumhverfissviði eða einhvern á vinnustaðnum sem hefur sérþekkingu á málefninu. Öll slík skref þarf að taka í samráði við brotaþola. 

Að ræða málið við yfirmann eða aðra á vinnustað getur verið lykilatriði, bæði til þess að hægt sé að bæta öryggi viðkomandi á vinnustað sem getur í sumum tilvikum verið nauðsynlegt en einnig getur ofbeldið verið skýring á því að viðkomandi hefur ekki staðið sig jafn vel í vinnu og annars. Það er alltaf mælt með að brotaþoli hafi samband við ráðgjafa sem eru sérhæfðir í heimilisofbeldi. Ákvörðunin þarf hins vegar allt að vera brotaþola.

Teikning af manni að rétta strák plöntu.