Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026 - Tilnefningar óskast
Tilnefna má einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi. Ert þú með tillögu?
Markmið mannréttindaverðlaunanna er að vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og mikilvægi samfélags þar sem mannréttindi eru virt. Mannréttindadagur Reykjavíkurborgar er 16 maí ár hvert. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn þann 11. maí næstkomandi.
Tilnefna má einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.
Mannréttindaverðlaunin 2025 komu í hlut Afstöðu, félags um bætt fangelsismál og betrun, fyrir ómetanlegt starf í þágu fanga og aðstandenda þeirra. Handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar hlýtur að launum kr. 600.000,-
Hver eiga að fá mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026?
Öll geta sent inn tilnefningar ásamt rökstuðningi á netfangið mannrettindi@reykjavik.is
Frestur til að skila tilnefningum er til 24. apríl 2026.
Dómnefnd til verðlaunanna er skipuð til eins árs í senn en hana skipa þrír einstaklingar sem hafa haft aðkomu að jafnréttis- og mannréttindamálum í sínum störfum.
Handhafar mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar:
- Afstaða 2025
- Þórey Einarsdóttir 2024
- Trans Ísland 2023
- Pepp Ísland samtök fólks í fátækt 2022
- Rótin félag um konur, áföll og vímugjafa 2021
- Solaris hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi 2020
- Móðurmál samtök um tvítyngi 2019
- Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi W.O.M.E.N. á Íslandi 2018
- Með okkar augum 2017
- Þórunn Ólafsdóttir 2016
- Frú Ragnheiður 2015
- Geðhjálp 2014
- Kvennaathvarfið 2013
- List án landamæra 2012
- Hinsegin dagar 2011
- Blátt áfram 2010
- Rauði Kross Íslands 2009
- Alþjóðahús 2008