
Sorphirða hefur gengið vel að undanförnu. Starfsfólk sorphirðunnar hefur unnið sér í haginn í dymbilviku til að klára að hirða sorp fyrir páskafrí en frí verður hjá starfsfólki föstudaginn langa og annan í páskum. Unnið verður aukalega á skírdag og sumardaginn fyrsta eftir þörfum.
Þjónusta á grenndarstöðvum um páska
Gámar fyrir pappír og plast verða losaðir miðvikudaginn 16. apríl og laugardaginn 19. apríl. Gámar fyrir gler og málma voru tæmdir í vikunni.
Gámar fyrir pappír og plast eru nú staðsettir á öllum stærri grenndarstöðvum. Minnum líka á að með nýja flokkunarkerfinu hófst söfnun á glerumbúðum og málmum í grenndargámakerfinu. Gáma fyrir þessa flokka má finna á öllum grenndarstöðvum höfuðborgarsvæðisins en kort yfir þær er hægt að skoða á vef Sorpu.
Endurvinnslustöðvar Sorpu verða opnar á skírdag og sumardaginn fyrsta. Lokað er föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum.
Minnum á moltuna
Tími vorverkanna í garðinum er að ganga í garð, lóan er mætt og minnir okkur á bjartari tíma. Moltan er líka mætt en fyrr í mánuðinum hófst dreifing á ókeypis moltu, sem er öflugur jarðvegsbætir. Framleiðsla á moltunni í GAJU er með starfsleyfi frá Matvælastofnun. Athugið að hægt verður að sækja stærri farma í GAJU fyrsta laugardag hvers mánaðar.
Reykjavíkurborg býður íbúum enn fremur að sækja sér moltu á sjö grenndarstöðum í hverfum borgarinnar. Minnum á að taka skóflu með í verkið!
Hvar verða gámarnir?
-
Við Klambratún, á bílaplani við Flókagötu.
-
Laugardalslaug, á bak við stúkuna, við Sundlaugaveg.
-
Spönginni
-
Við Breiðholtslaug
-
Selásbraut við Norðurás
-
Kjalarnes, vestan við hverfastöðina
-
Þjóðhildarstíg
Fyrir þau sem ætla sér að vera í garðverkum yfir páskana minnum við á að tekið er á móti garðaúrgangi á endurvinnslustöðvum Sorpu.