Gender Equality Academy

Illustration of a teacher in front of the board in a classroom.

The Gender Equality School creates a platform for education, counseling, and support regarding equality education, human rights, and sexual health. It serves City staff in school and recreational activities, as well as children and parents when applicable.

The Gender Equality School received the 2023 Icelandic Education Awards' Incentive Prize for its invaluable work in sharing knowledge and providing advice to SFS managers and staff on equality and sexual health issues.

From taboo to trust

Five educational videos for parents of younger children (preschool and youngest level) covering sex education and prevention of sexual abuse.

Hlutverk Jafnréttisskólans

Samkvæmt íslenskum lögum, aðalnámskrá grunnskóla, menntastefnu Reykjavíkurborgar, samþykktum þingsályktunum og alþjóðlegum samningum eru íslensk stjórnvöld skuldbundin að tryggja fræðslu um kynheilbrigði, mannréttindi og kynjajafnrétti í skólakerfinu. Allt efni Jafnréttisskólans miðar að því að framfylgja þeim ákvæðum og lögum og byggir á þema UNESCO um alhliða kynfræðslu. 

Allt kynfræðsluefni á vegum Jafnréttisskólans er aldursgreint og miðar við þroska barna og ungmenna hverju sinni. Hægt er að lesa meira um áherslur kynfræðslu í grunnskólum hér að neðan. 

Teikning af tveimur konum, önnur þeirra situr í hjólastól og heldur á barni.

Vika6

Vika6 er eitt þekktasta verkefni Jafnréttisskólans en átakið fer fram í sjöttu viku árs hvers. 

Í tilefni þess gefur Jafnréttisskólinn út ýmist efni tengt alhliða kynfræðslu fyrir leikskóla, yngsta stig, miðstig og unglingastig grunnskóla. Þema hvers árs er ákveðið af ungmennum borgarinnar. 

Starfsfólk leikskóla, grunnskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila er hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu sem miðar að aldri og þroska ungmennanna.

Hvað er alhliða kynfræðsla?

Alhliða kynfræðsla snýst um að huga að sem flestum þáttum kynheilbrigðis; líkamlegum, félagslegum og tilfinningalegum þáttum.

Til að tryggja að kynfræðsla sé árangursrík og valdeflandi, hjálpi ungmennum að þekkja líkama sinn, setja og virða mörk og gera sér grein fyrir því hvað felst í heilbrigðum samskiptum, er nauðsynlegt að bæði starfsfólk og foreldrar taki virkan þátt í þeirri vinnu.

Hér að neðan er algengum spurningum svarað og veitt ýmis ráð varðandi kynfræðslu barna og ungmenna.

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

Á Youtube rás Jafnréttisskólans má finna ýmis myndbönd sem hægt er að nota í kennslu eða til eigin fróðleiks. Einnig erum við virk á Instagram og TikTok. 

Teikning af karli í jakkafötum með fána hinsegin fólks.

Project managers of the Gender Equality Academy