Ertu normal?
Hér er boðið upp á spennandi verkefni þar sem unglingar fá tækifæri til að velta fyrir sér þröngum ramma samfélagsins um hvað er að vera normal. Verkefnið felur í sér fræðslu á myndbandaformi og endar með ljósmyndasýningu á verkum þátttakenda í fallegu rými á Barnamenningarhátíð.
Um verkefnið
Hvað er að vera normal? Hver ákveður það? Er feitt fólk ekki kynþokkafullt? Má gamalt fólk fara í sleik? Eru hommar alltaf kvenlegir? Eru geðsjúkdómar hræðilegir? Þarf að vorkenna fólki með fötlun?
Verkefnið er ætlað 8.-10. bekk. Hver starfsstaður fær frelsi til að útfæra það á sinn hátt í góðu samráði við umsjónaraðila þess. Verkefnið er unnið að sænskri fyrirmynd en þar kallast það Normstorm.
Hvað er í pakkanum?
- Lán á vandaðri myndavél
- Prentkostnaður á ljósmyndum
- Þátttaka í sýningu með sýningarstjórnun
- Ráðgjöf frá umsjónaraðilum
Sjö rafræn erindi
- Eitt um staðalmyndir
- Tvö um ljósmyndun
- Eitt um viðburðarstjórnun
- Þrjú erindi frá ungu íslensku fólki sem víkkar út þröngan ramma staðalmynda samfélagsins.
Fyrirlesarar
- Embla Guðrúnar-Ágústsdóttir, ung líkamlega fötluð, samkynhneigð kona sem nýlega lauk háskólanámi og eignaðist sitt fyrsta barn.
- Andrean Sigurgeirsson, ungur samkynhneigður maður sem starfar sem dansari.
- Tómas Welding, ungur maður með tourette sem er sjálfmenntaður tónlistarmaður og ljósmyndari.
- Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur.
- Harpa Rut Hilmarsdóttir, verkefnastýra Barnamenningarhátíðar.
- Erla Stefánsdóttir, verkefnastýra hjá Mixtúru.
Viltu taka þátt?
Fyrir frekari upplýsingar:
![Mynd af eldri karlmanni að varalita sig við spegil.](/sites/default/files/styles/large_image/public/2022-02/Mynd%20R%C3%B3sa%20D%C3%ADs.png?h=a610a299&itok=32e-r1ui)
Fyrirlestrar