Bakkinn
Félagsmiðstöð fyrir 10–16 ára
Breiðholtsskóli, Arnarbakki 1-3
109 Reykjavík
Félagsmiðstöðin Bakkinn er staðsett í Breiðholtsskóla. Félagsmiðstöðin hefur verið starfrækt frá árinu 2010 og þjónustar börn og unglinga á aldrinum 10-16 sem búsett eru í Bakkahverfi. Bakkinn heyrir undir frístundamiðstöðina Miðberg.
Markmið félagsmiðstöðvarinnar Bakkans er að bjóða upp á fjölbreytt, skapandi og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga í hverfinu. Í því felst að skapa jákvætt andrúmsloft og umhverfi í frístundastarfi þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskipta- og félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Lagt er upp með að bjóða upp á fjölbreytt viðfangsefni í hverjum mánuði sem höfðar til ólíkra barna og unglinga með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggt umhverfi sem þeim líður vel í. Að auki er mikil áhersla lögð á fræðslu gegn fordómum og forvarnir gegn vímuefnum.
Forstöðukona: Herdís Einarsdóttir (í fæðingarorlofi)
Starfandi forstöðukona: Karen Ósk Ólafsdóttir, sími 692 4952
Aðstoðarforstöðukona: Sunna Guðríður Vilhjálmsdóttir, sími 695 5028
Bakkinn
Viltu vita meira um Bakkann? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar.
Opnunartímar
5.-6. bekkur
- Mánudagar: 14:00-16:00
- Föstudagar: 17:00-18:30
7. bekkur
- Miðvikudagar: 17:00-19:00
- Föstudagar: 17:00-18:30
8.-10. bekkur
- Mánudagar: 19:30-21:45
- Þriðjudagar: 13:00-15:30
- Miðvikudagar: 13:00-15:30
- Miðvikudagar: 19:30-21:45
- Föstudagar: 19:30-22:45
Hagnýtar upplýsingar
Einelti í skóla- og frístundastarfi
Einelti og ofbeldi getur haft varanleg áhrif á sálarlíf barna og unglinga. Það á ekki að viðgangast í skóla- og frístundastarfi. Allir starfsstaðir barna og unglinga eru með áætlun gegn einelti. Foreldrar sem fá vísbendingar eða upplýsingar um einelti ættu að taka það alvarlega og tilkynna til viðkomandi aðila. Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar starfa eftir gátlista vegna eineltis sem unninn var í víðtæku samráði fagaðila.
Röskun á skóla- og frístundastarfi
Tilmæli eru um viðbrögð foreldra / forráðamanna barna í skólum og frístundastarfi. SHS hefur verið falið af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu að fylgjast með veðri og veðurspám og senda út tilkynningar ef á þarf að halda, eftir atvikum í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Sumaropnanir
Mánudagar: 19:30 - 22:30 - sameiginlegt
Miðvikudagar: 19:30 - 22:30 - sameiginlegt
Föstudagar: 19:30 - 22:30 - sameiginlegt
Félagsmiðstöðvarnar sameinast stundum um opnanir á sumrin og því mikilvægt að fylgjast vel með staðsetningu opnanna á samfélagsmiðlum. Upplýsingar um staðsetningu sumarstarfs fyrir 10-12 ára börn kemur fram í auglýsingum og tölvupóstum til foreldra.
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í félagsmiðstöðinni Bakkanum má finna á heimasíðu Breiðholtsskóla
Hvað viltu skoða næst?
- Félagsmiðstöðvar Frístundastarf fyrir 10-16 ára börn
- Foreldrasamstarf í skóla- og frístundastarfi Þátttaka foreldra skiptir miklu máli
- Fjölmenning í skóla- og frístundastarfi Öll börn eiga að fá jöfn tækifæri til að vera stolt af uppruna sínum og menningu
- Sumarnámskeið Sumarið er tíminn
- Frístundastarf fatlaðs fólks Fjölbreytt frístundastarf er rekið á vegum borgarinnar fyrir fatlað fólk; börn, unglinga og fullorðna
- Frístundastyrkur - Frístundakortið Frístundakortið er styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir 6–18 ára börn og unglinga með lögheimili í Reykjavík