Akstursþjónusta fatlaðs fólks
Fatlað fólk sem getur ekki nýtt sér almenningssamgöngur eða eigið farartæki getur átt rétt á akstursþjónustu. Markmið þjónustunnar er að fólk geti farið ferða sinna á þeim tíma sem það kýs. Pant sér um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Á ég rétt á akstursþjónustu?
Til að eiga rétt á þjónustunni þarft þú að eiga lögheimili í Reykjavík og uppfylla eitt eða fleiri af eftirfarandi skilyrðum:
- Vera hreyfihamlaður og nota hjólastól.
- Geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur vegna fötlunar.
- Vera blindur.
Fötluð börn geta fengið akstursþjónustu og sækja þá foreldrar eða forsjáraðilar um hana.
Hvernig sæki ég um þjónustuna?
Þú sækir um akstursþjónustu á rafrænan hátt á Mínum síðum.
Einnig er hægt að fylla út umsókn á PDF-formi og skila á miðstöð í þínu hverfi eða senda á netfangið akstur@reykjavik.is
Hvað gerist næst?
Umsóknin þín er metin út frá skilyrðum og möguleikum þínum til að nýta aðra ferðamöguleika. Fólk getur fengið akstursþjónustu hluta úr ári ef þörf er á.
Þú færð skriflega tilkynningu um hvort umsókn er samþykkt eða synjað. Svör við rafrænum umsóknum eru birt á umsóknargátt akstursþjónustu. Almennt er þjónustan samþykkt til tveggja ára.
Ef umsókn er synjað og þú telur sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir því að veita skuli þér undanþágu frá reglum getur þú sent inn beiðni um áfrýjun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs.
Ég hef fengið samþykkta akstursþjónustu, hvað svo?
Þegar þú hefur fengið akstursþjónustu samþykkta hefur þú samband við Pant sem veitir þjónustuna.