Aðalskipulag Reykjavíkur
Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 er uppfærð og endurbætt útgáfa AR2030, sem samþykkt var árið 2014. Aðalskipulagið var samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur þann 19. október 2021, samanber einnig samþykkt hennar 21. desember 2021. Aðalskipulagið var undirritað þann 13. janúar 2022 og tók gildi með birtingu í Stjórnartíðindum þann 18. janúar 2022.
Breytingar í vinnslu
Hér geturðu skoðað öll mál sem eru í vinnslu.
Staðfestar breytingar
Eftirfarandi breytingar hafa verið staðfestar.
Stefnumörkun og skipulagsákvæði
Bindandi stefnumörkun og skipulagsákvæði Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 eru sett fram í greinargerð (grænt hefti) og á þéttbýlis- og sveitarfélagsuppdráttum. Greinargerðin og skipulagsuppdrættirnir mynda A-hluta aðalskipulagsins. Skipulagsgögn í A-hluta eru aðal verkfæri skipulagsyfirvalda við ákvarðanatöku dags daglega og sá hluti aðalskipulagsins sem háður er lögformlegum breytingum samkvæmt skipulagslögum.
Umhverfismat, forsendur og skýringargögn eru að finna í B-hluta aðalskipulagsins og ber að horfa til þeirra, eftir því sem ástæður kalla á, við ágreining um túlkun einstakra ákvæða og markmiða og þegar ráðist er í stakar breytingar á stefnunni í framtíðinni eða ákveðið að taka til endurskoðunar valda þætti stefnunnar. Um önnur fylgiskjöl sjá greinargerð aðalskipulagsins. Gögn verða einnig gerð aðgengileg í skipulagssjá og skipulagsgátt.
Hvað er aðalskipulag?
Í aðalskipulagi er sett fram stefna um þróun borgarinnar til langrar framtíðar. Í aðalskipulagi er ákveðið hvar íbúðarhverfin og atvinnusvæðin eiga að vera, hvar nýjar götur og stígar liggja, hvaða svæði verða tekin frá til útivistar og hvaða svæði á að vernda. Með aðalskipulagi eru sköpuð skilyrði fyrir áframhaldandi vexti borgarinnar og sýnt fram á hvernig yfirvöld ætla að mæta væntanlegri fjölgun íbúa og starfa.
Leitast er við að svara spurningum á borð við: Hverskonar hverfi viljum við skapa? Hvaða ferðamáta viljum við styrkja? Hvaða svæði viljum við vernda? Hvernig tryggjum við umhverfisgæði og aukum aðdráttarafl borgarinnar fyrir nýja íbúa og fyrirtæki? Hvernig getum við gert Reykjavík að enn betri borg, horft jafnt til byggðarinnar, samfélagsins og náttúrunnar?
Leiðbeinandi forsendur og skýringargögn (B-hluti)
Megin forsendur, umhverfismat, hugmyndafræði og áherslur sem eru leiðbeinandi og höfð til hliðsjónar við frekari breytingar á aðalskipulaginu, túlkun hinnar bindandi stefnu og eftir atvikum við mótun skipulags og ákvarðanatöku á neðri stigum skipulagsgerðar:
- Umhverfisskýrsla: Aðalskipulag Reykjavíkur 2040, Endurskoðuð stefna um íbúðarbyggð og blandaða byggð og framlenging skipulagstímabils til 2040 (september 2021, VSÓ-ráðgjöf)
- Sjá einnig til hliðsjónar eldri umhverfisskýrslu VSÓ-ráðgjafar (júlí 2013)
- Reykjavík 2040. Kynningarrit um uppfærslu Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030 ( blátt hefti)
Eldri kaflar AR2010–2030 eru til leiðbeiningar og hafa þeir fengið nýja yfirskrift, ásamt skýringum um það sem hefur verið fellt úr gildi. Öll bindandi markmið og ákvæði sem sett eru fram í viðkomandi köflum og halda gildi sínu, eru einnig sett fram í græna heftinu í A-hluta. Ef upp kemur misræmi milli þess sem kemur fram í A-hluta aðalskipulagsins og þess sem kemur fram í neðangreindum köflum, gildir það sem sett er fram í A-hlutanum.