Reykjavíkurkortið
Settu saman þitt kort og veldu það sem hentar þér. Reykjavíkurkortið er þinn aðgangur að því besta sem borgin hefur upp á að bjóða. Þú velur hvað fer á kortið og getur haft það allt í símanum: sundkort, Menningarkort, Ylströndin í Nauthólsvík, Fjölskyldu- og húsadýragarðurinn eða líkamsrækt í Klébergslaug. Þitt er valið!
Þú sækir um kortið í afgeiðslu í næstu sundlaug Reykjavíkur, Borgarsögusafni, Listasafni Reykjavíkur, Fjölskyldu- og húsdýragarði eða Ylströnd.
Sundkort
Allir dagar geta verið laugar-dagar með Reykjavíkurkortinu.
Það er fátt betra en að skella sér í sund enda sameinast þar hreyfing, slökun og góð samvera.
Og svo er alltaf gott að enda í heita pottinum.
Menningarkort
Viltu bæta smá menningu við kortið þitt? Menningarkortið veitir aðgang að fjölbreyttu menningarlífi borgarinnar.
Innifalið í kortinu eru 14 söfn, 50+ sýningar, 300+ viðburðir, bókasafnsskírteini og fjöldi tilboða.
Ylströndin í Nauthólsvík
Ylströndin er einstakur staður, sannkölluð paradís í borgarlandinu.
Þar getur þú notið útiveru í fallegu umhverfi, hvort sem þú vilt fara í sjóinn eða slaka á í heitum potti.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn býður upp á fjölbreytta afþreyingu og viðburði fyrir unga sem aldna.
Þar getur þú heimsótt dýrin, farið í leiktæki, fengið þér hressingu eða einfaldlega notið samveru utandyra.
Líkamsrækt í Klébergslaug
Í Klébergslaug er lítill líkamsræktarsalur í notalegu umhverfi.
Góður kostur fyrir þau sem vilja einfalda og rólega æfingu.
Svo er alltaf hægt að skella sér í laugina á eftir.
Gott að hafa í huga
Hvað er innifalið í kortinu?
Þú setur saman þitt kort og velur það sem hentar þér. Sundlaugar, menning, ylströndin, fjölskyldu- og húsdýragarðurinn eða ræktin í Klébergslaug.
Kostar að skipta úr plasti yfir í rafrænt kort?
Nei. Það kostar ekki að skipta úr plasti yfir í rafrænt kort. Áskriftirnar þínar færast á milli.
Fæ ég plastkortið endurgreitt?
Nei. Plastkortið er ekki endurgreitt þegar skipt er yfir í rafrænt kort.
Get ég verið með bæði plastkort og rafrænt kort?
Nei. Þegar þú færð kortið í símann hættir plastkortið að virka.
Hvernig fæ ég kortið í símann?
Þú sækir um kortið í afgeiðslu í næstu sundlaug Reykjavíkur, Borgarsögusafni, Listasafni Reykjavíkur, Fjölskyldu-og húsdýragarði eða Ylströnd.
Get ég haldið áfram að nota plastkortið?
Já. Þú getur valið það sem hentar þér. Plastkort verða áfram í boði fyrir þau sem vilja. Mundu bara að það er ekki hægt að vera með bæði plastkort og rafrænt kort.
Ertu með einhverjar spurningar?
Ef þig vantar frekari upplýsingar getur þjónustuver borgarinnar aðstoðað þig í síma 411 1111, á netspjalli og í gegnum netfangið reykjavikurkort@reykjavik.is.