Breytt gjaldskrá sundlauga, Ylstrandar og Fjölskyldu- og húsdýragarðs

Dalslaug, mynd tekin niður á við yfir sundlaugasvæðið, frá húsinu. Fólk í lauginni. Skýjað úti.

Breytingar á gjaldskrám sundlauga Reykjavíkurborgar, Ylstrandarinnar og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins voru samþykktar í borgarstjórn í gær. Breytingunum er ætlað að gera þjónustu borgarinnar aðgengilegri, sanngjarnari og ódýrari fyrir fjölskyldur og reglulega notendur.

Nýjar gjaldskrár hafa það markmið að hvetja til aukinnar notkunar og stuðla að sanngjarnari gjaldskrá, sem umbunar borgarbúum sem eru fastagestir en tryggir á sama tíma að aðrir gestir, sérstaklega erlent ferðafólk, borgi nær raunkostnaði fyrir þjónustuna. Verð á ársmiðum í sund, Ylströnd og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn lækkar þannig um 21-77%. Þá er í fyrsta sinn boðið upp á að kaupa ársmiða í áskrift. Ef farið er oftar en einu sinni í viku í sund, einu sinni í mánuði á Ylströndina eða oftar en tvisvar á ári í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, þá borgar sig að vera í áskrift. 

Tafla sem sýnir breytingar á gjaldskrá sundlauga.

Reykvísk ungmenni undir 18 ára aldri fá frítt í sund

Ein stærsta breytingin er sú að öll reykvísk ungmenni 17 ára og yngri fá frítt í sund og á Ylströndina, en hingað til hafa 16 og 17 ára unglingar þurft að greiða fyrir sundferðir. Árskort fullorðinna í sundlaugar Reykjavíkur lækkar um 29%, úr 48 þúsund krónum í 34 þúsund krónur, sem gerir það að hagstæðasta árskortinu í sund á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir fjölskyldu með tvo foreldra þýðir þetta minnst 28 þúsund krónu sparnað á ári. Lækkanirnar ná einnig til annarrar mikilvægrar afþreyingar. Árskort barna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn lækkar um 77%, úr 17.600 krónum í 4 þúsund krónur og árskort fullorðinna lækkar um 60%. Á Ylströndina lækkar árskortið um 21%.

Tafla sem sýnir breytingar á gjaldskrá Ylstrandar Tafla sem sýnir breytingar á gjaldskrá Fjölskyldu- og húsdýragarðs

Skráning mikilvæg af öryggisástæðum

Gerð verður krafa um skráningu og aðgangskort barna, af öryggisástæðum. 10 ára börn og eldri mega fara ein í sund og nauðsynlegt er að hafa nákvæmar upplýsingar um hvaða börn eru á starfsstöðunum hverju sinni. Þá munu aðgangskortin fækka prentuðum aðgangsmiðum og minnka álag á framlínustarfsfólk. Tekið verður 1000 krónu gjald fyrir útgáfu á plastkorti eða stafrænu korti. Lagt er upp með að það geti nýst á alla starfsstaði borgarinnar og að hægt verði að fylla inn á það eftir því sem við á. Reykjavíkurborg mun taka á sig kostnað vegna útgáfu fyrsta aðgangskorts og árgjalds fyrir 10-17 ára ungmenni sem hafa lögheimili í Reykjavík, vegna sundlauga og Ylstrandar og munu reykvísk börn því ekki bera kostnað af því að sækja þjónustu þessara staða.

Breytingarnar taka gildi 5. maí næstkomandi.

Fólk í heita pottinum á Ylströndinni í Nauthólsvík. Mynd tekin ofan frá. Búnaður til sjósundsiðkunar á bakkanum.
Frá Ylströndinni í Nauthólsvík.