Klébergslaug

Mán.–fim. kl. 08:00–22:00
Fös. kl. 08:00-19:00
Lau. kl. 11:00-18:00
Sun. kl. 11:00-22:00

Kollagrund 4
Kjalarnes
116 Reykjavík

Klébergslaug að sumri til

Klébergslaug

Klébergslaug er lítil og róleg sundlaug staðsett í Grundarhverfi á Kjalarnesi sem þjónar nærsamfélaginu og öllum þeim sem leggja leið sína þangað. Þar er sundlaug, heitir pottar, kaldur pottur, sána og einföld en notaleg aðstaða fyrir slökun og sund. Helsti kostur Klébergslaugar er rólegt umhverfi og fallegt útsýni yfir náttúruna í kring. Laugin hentar því vel þeim sem vilja upplifa hefðbundna íslenska hverfalaug í friðsælu umhverfi utan þéttasta kjarna borgarinnar. 

Kaldi potturinn í Klébergslaug.

Aðstaða í og við Klébergslaug

  • Barnarennibraut
  • Heitir pottar
  • Kaldur pottur
  • Rennibraut
  • Sána
  • Vaðlaug
Stairs leading down to the shallow end of Klébergslaug

Aðgengi og sérklefar

Við viljum að öllum líði vel í sundlaugum Reykjavíkur. Þess vegna er lögð áhersla á gott aðgengi, þægilega aðstöðu og fjölbreytta möguleika fyrir ólíkar þarfir. Hér er yfirlit um aðgengi og sérklefa í öllum sundlaugum Reykjavíkur. 

Aðrar upplýsingar

Verðskrá líkamsræktar

  • Stakt skipti fullorðinn - 1.430 kr.-
  • Stakt skipti unglingar 14-17 ára - 350 kr.-
  • Stakt skipti öryrkjar - 350 kr.-
     
  • Fullorðnir 1 mánuður líkamsrækt 6.680 kr.-
  • Fullorðnir 3 mánuðir líkamsrækt 13.620 kr.-
  • Fullorðnir 6 mánuðir líkamsrækt 26.100 kr.-
  • Fullorðnir 12 mánuðir líkamsrækt 48.000 kr.-
  • Unglingar 12 mánuðir líkamsrækt 26.100 kr.-
     
  • Fullorðnir 10 skipti - 6.520 kr.-
  • Unglingar 14-17 ára - 10 skipti - 3.500 kr.
  • Öryrkjar 10 skipti - 3.500 kr.- 

Skólasund og æfingar

Frá lok ágúst fram í júní má gera ráð fyrir því að hluti af laugum séu uppteknar undir skólasund og æfingar. Nánari upplýsingar er að fá í afgreiðslu í sundlauginni.