Kynjajafnrétti

Í mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar má finna kafla um jafnrétti kynja.

Verkefni mannréttindaskrifstofu sem snúa að kynjajafnrétti er að finna í aðgerðaráætlun í jafnréttis- og mannréttindamálum 2023 til og með 2026. Áætlunin er einnig jafnréttisáætlun Reykjavíkurborgar sbr. 13. gr. laga nr. 1514/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála.

Saman gegn ofbeldi

Í janúar 2015 hóf Reykjavíkurborg og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Kvennaathvarfið og heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu vinnu að verkefni sem nefnist Saman gegn ofbeldi. Markmið verkefnisins er að efla stuðning við þolendur og senda skýr skilaboð um að heimilisofbeldi sé ekki umborið.

Klámvæðing er kynferðisleg áreitni

Bæklingurinn er samvinnuverkefni mannréttindaskrifstofu og MARK, miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna við Háskóla Íslands. Í bæklingnum er sýnt hvernig umræða um útlit ásamt niðurlægjandi myndbirtingum er beitt til þess að grafa undan trúverðugleika kvenna og styrk. Færð eru rök fyrir því að klámvæðing, hvort sem hún birtist í orðum eða myndmáli, sé kynferðisleg áreitni.

Kynlegar tölur

Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa og mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar hafa gefið út bækling sem nefnist „Kynlegar tölur“ og hefur hann að geyma tölfræðilegar upplýsingar þar sem varpað er ljósi á ólíka stöðu karla og kvenna eins og hún birtist á ýmsan hátt í borginni.

Jafnréttismál í íþróttafélögum

Jafnrétti í skólum

Samstarfsverkefni mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og skóla- og frístundasviðs með stuðningi Jafnréttisstofu. Verkefnið snýr að jafnréttisfræðslu fyrir kennara í leik- og grunnskólum og starfsfólk í frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum borgarinnar.

Kynjuð fjárhags- og starfsáætlun

Kynjuð fjárhags- og starfsáætlun er viðamikið verkefni sem er unnið þvert á öll svið borgarinnar. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að auknu jafnrétti og betri nýtingu fjármuna með þarfir íbúa að leiðarljósi. Verkefnastýra kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar er staðsett á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu.

Evrópusáttmáli um jafna stöðu kvenna og karla

Reykjavíkurborg hefur skrifað undir Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum.