Jafnréttisskólinn
![](/sites/default/files/media-library/kennari.png)
Hlutverk Jafnréttisskólans er að skapa vettvang og veita fræðslu, ráðgjöf og stuðning varðandi jafnréttismenntun, mannréttindi og kynheilbrigði til starfsfólks í skóla- og frístundastarfi borgarinnar, auk barna og foreldra eftir atvikum.
Jafnréttisskólinn hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2023 fyrir ómetanlegt starf við að miðla þekkingu og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks SFS varðandi jafnréttis- og kynheilbrigðismál.
Hinsegin- og kynjafræðsla
Hér getur þú skoðað verkfærakistu með verkefnum tengdum hinsegin- og kynjafræðslu.
Jafnréttismenntun
Markmið jafnréttismenntunar er að skapa tækifæri fyrir öll börn til að þroskast á eigin forsendum
Vika6
Vika6 er sjötta vika ársins. Hún hefur fest sig í sessi sem árleg vika kynheilbrigðis í öllum grunnskólum og frístundamiðstöðvum. í Viku6 ættu öll börn og unglingar í borginni að fá kynfræðslu í einhverju formi. Hér má finna kynfræðslu fyrir öll stig grunnskóla.
![Ungmenni situr við sjó í bol með skilaboum um jafnrétti](/sites/default/files/styles/large_image/public/2022-02/Jafnretti_ungmenni.jpg?h=a1dc4111&itok=RLYfDIuj)
Spurt og svarað um kynfræðslu og hinseginfræðslu
Af hverju er hinseginfræðsla mikilvæg? Eða kynfræðsla? Eiga foreldrar rétt á að taka barn úr skóla þegar hinseginfræðsla eða kynfræðsla fer fram? Hér finnur þú svör við ýmsum spurningum varðandi kynfræðslu og hinseginfræðslu barna.
Verndum öll börn!
Upptökur frá erindum á rafrænni málstofu um mikilvægi kynfræðslu og hinseginfræðslu. Málstofan Verndum öll börn! var haldin 20. nóvember 2023.
![Auglýsing fyrir málstofuna "Verndum öll börn!" 20. nóvember 2023.](/sites/default/files/styles/photo_small/public/2023-11/verndum_oll_born.png?h=bf86e53b&itok=o7WBFTf8)
Ertu normal?
Hér er boðið upp á spennandi verkefni þar sem unglingar fá tækifæri til að velta fyrir sér þröngum ramma samfélagsins um hvað er að vera normal. Verkefnið felur í sér fræðslu í myndbandaformi og endar með ljósmyndasýningu á verkum þátttakenda.
![Drengur að mála sig um augun með maskara](/sites/default/files/styles/photo_small/public/2022-02/Ertu_normal_ljosmyndasyning_3.jpg?h=a1e1a043&itok=zcQhr_WA)
En ég var einn!
Fyrirlestraröðin En ég var einn! Sjálfsmynd stráka og kerfið var haldin í samstarfi Jafnréttisskóla Reykjavíkur, Geðhjálpar og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Hér má finna myndbönd frá ráðstefnunni.
![Gul mynd með svartri skuggamynd af ungmenni. Inni í skuggamynd er völundarhús. Texti sem segir En ég var einn! Sjálfsmynd stráka og kerfið.](/sites/default/files/styles/photo_small/public/2022-02/En_eg_var_einn.jpg?h=d1cb525d&itok=bRVOyM-B)