No translated content text
Austurheiðar útivistarsvæði fyrsti áfangi
Skýringarmyndir
Hvað verður gert?
Austurheiðar ná yfri Hólmsheiði, Grafarheiði og Reynisvatnsheiði, alls um 930 ha svæði, og innan svæðisins eru Rauðavatn, Reynisvatn og Langavatn að hluta. Uppbygging svæðisins er þáttur stefnu borgarinnar í að gera svæðið að aðgengilegu útivistarsvæði og efla lýðheilsu.
Í fyrsta áfanga verður í Lyngdal byggður upp leik- og áningarstaður í skógarstíl, bílastæði verður lagfært stækkað og afmarkað, nýjir malarstígar lagðir og borið í eldri stíga, upplýsingaskilti verða sett upp og gönguleiðir merktar. Í Paradísarskál sem er mikið notað af hundaeigendum er lausaganga hunda heimiluð. Þar verður gert áningarsvæði fyrir fólk og dýr, og æfingasvæði fyrir hunda, stígur að svæðinu verður breikkaður og aðrir lagfærðir, bekkir settir upp og upplýsingaskilti með merkingum gönguleiða.
Gönguleiðir á svæðinu verða kortlagðar og merktar eftir litakerfi og sett verða upp upplýsingaskilti, vegstikur og vegprestar.
Hvað kostar þetta?
Áætlaður heildarkostnaður þessa áfanga er 45 milljónir.
Hvernig gengur?
Ágúst 2023
Framkvæmdum er lokið og búið er að fara í lokaúttekt á 1 áfanga fyrir Austurheiði útivistasvæði
mars 2023
Framkvæmdum er að mestu lokið, lokafrágangur klárast með vorinu 2023.
september 2022
Verkefnið er í framkvæmd - í Paradísarskálinni er búið að gerð nýjan malarstíga sem tengist við núverandi stígakerfi, einnig hefur verið borið eldri stíga þeir gerðir greiðfærari. Búið er að setja upp leik- og æfingatæki fyrir hunda í Paradísarskálinni og áningarsvæði þar er í vinnslu.
júlí 2022
Verkið er í vinnslu hjá verktaka
Hver koma að verkinu?
Verktakar
Verkkaupi
Umhverfis- og skipulagssvið
Skrifstofa framkvæmda og viðhalds
Ábyrgðarmaður vinnusvæðamerkinga
Hönnuðir
Eftirlitsaðili framkvæmda
Eftirlitsmaður: Brynjar Már Andrésson