Austurheiðar útivistarsvæði annar áfangi

Gerð leik- og dvalarsvæðis við Rauðavatn með aðgengilegri stígatengingu frá bílastæðinu að leik- og dvalarsvæði við vatnið, út frá því verða gerðar nýjar og endurbættar stígatengingar.
2023
Undirbúningur
Hafið
Lokið

Skýringarmyndir

Hvað verður gert?

Austurheiðar ná yfri Hólmsheiði, Grafarheiði og Reynisvatnsheiði, alls um 930 ha svæði, og innan svæðisins eru Rauðavatn, Reynisvatn og Langavatn að hluta. Uppbygging svæðisins er þáttur stefnu borgarinnar í að gera svæðið að aðgengilegu útivistarsvæði og efla lýðheilsu.

Í öðrum áfanga verður gert leik- og dvalarsvæði í skógarstíl í nálægð við Rauðavatn með tilheyrandi bekkjum/borðum, leiktækjum og grillaðstöðu. Gerður verður aðgengilegur stígur frá bílastæðinu og að nýja dvalarsvæðinu og út frá því eru fjölbreyttar stígatengingar. Svæðinu er ætlað að auðvelda aðgengi að Rauðavatni og upplifa fjölbreytt lífríki ekki síst fuglalífið við vatnið. Yfir vetrartímann nýtist þessi aðstaða líka vel fyrir skautafólk.

Hvað kostar þetta?

Áætlaður heildarkostnaður þessa áfanga er 55 milljónir.

Hvernig gengur?

14. mars 2023

Verkið er í undirbúningi hjá verktaka

Hver koma að verkinu?

Verkkaupi

Reykjavíkurborg

Verkefnisstjóri hönnunar og áætlanagerðar

Marta María Jónsdóttir

Verkefnisstjóri framkvæmdar

Marta María Jónsdóttir

Verktaki

Stéttafélagið ehf.

Hönnun

Landmótun og Mannvit

Eftirlit

VSR Verkfræðistofa Reykjavíkur
vsr.is

Eftirlitsmaður

Brynjar Már Andrésson

Eftirlitsmaður

Jökull Jónsson

Ábyrgðarmaður vinnusvæðamerkinga

Hlynur Hermannsson hjá Stéttafélaginu ehf
Síðast uppfært 12.03.2024