Húsnæðisátak

Teikning af fólki og hundi úti í náttúrunni.

Markmiðið með húsnæðisátaki í grónum hverfum borgarinnar er að vinna hratt og vel við að deiliskipuleggja og úthluta byggingarhæfum íbúðalóðum til að mæta þörf á húsnæðismarkaði. Lögð er áhersla á að uppbyggingin taki mið af anda og aðstæðum á hverjum stað.

Forsagan

Borgarstjóri setti í byrjun árs 2024 af stað verkefnishóp um húsnæðismál. Meðal áherslna er að skoða möguleika á þróun á litlum og meðalstórum lóðum í úthverfum. Byrjað var á því að skoða Grafarvog en með þessum breytingum fá fleiri tækifæri til að búa í þessu gróna hverfi.

Reykjavíkurborg  hefur á síðastliðnum árum unnið markvisst að því að vakta þróun uppbyggingar til að mæta þörf á húsnæðismarkaði á grundvelli húsnæðisáætlana, markmiða Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 og með gerð hverfisskipulags fyrir gróin hverfi borgarinnar. 

Hverfið skoðað heildstætt

Mikilvægt er að skoða hvert hverfi heildstætt og því var ákveðið að byrja í einu hverfi frekar en að skoða svæði hér og þar. Í Grafarvogi er um að ræða fjölgun um allt að 500 íbúðir en lögð er sérstök áhersla í þessari uppbyggingu á að öll ný byggð passi vel inn í það umhverfi sem fyrir er. Þarna eiga eftir að bætast við lítil fjölbýli, einbýli og parhús hér og þar í hverfinu sem taka mið af anda og aðstæðum á hverjum stað.

 

Næst má búast við því að Breiðholtið verði skoðað í samhengi við tillögur sem komu fram í hverfisskipulagi sem var samþykkt fyrir skömmu. Áhersla er lögð á svæði með rými í skólum.

Teikning af blaði með húsum og stækkunargler sem sýnir eitt húsið vel.

Betri nýting innviða

Markmiðið með uppbyggingu í grónum hverfum er að efla hverfin og nýta innviði, svo sem vegakerfi og veitur, sem og verslunar- og þjónustukjarna. Einnig styður uppbyggingin við leikskóla og skóla í þessum hverfum sem hafa svigrúm til þess að taka á móti fleiri nemendum.

Hagkvæmt og fjölbreytt

Sérstök áhersla er lögð á hagkvæma og vistvæna uppbyggingu með því að stuðla að fjölbreyttu framboði íbúða , sem mætir húsnæðisþörfum ólíkra hópa samfélagsins eftir fjölskyldumynstri og aldri. Einnig á að tryggja lóðir fyrir smærri húsnæðisfélög sem ekki eru rekin í ágóðaskyni, finna lóðir fyrir smærri uppbyggingaraðila, skapa sjálfbærari hverfisheildir og styðja almennt betur við megin markmið aðalskipulags um sjálfbæra borgarþróun. 

Græn svæði

Unnið verður að því að uppbyggingin styðji við líffræðilega fjölbreytni og græn svæði, bæði innan og utan uppbyggingarsvæða. Áhersla verður lögð á vistvæna hönnun og byggingarmáta með lágmörkun kolefnisspors, blágrænum ofanvatnslausnum og fjölbreyttri gróðurþekju.

Teiknuð mynd af tré að sumri til.

Hvað gerist næst?

Lóðirnar sem stungið er upp á til uppbyggingar í húsnæðisátakinu eiga eftir að fara í gegnum hefðbundið deiliskipulagsferli, en þá gefst íbúum tækifæri til að koma með ábendingar og athugasemdir.

Verklýsing breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur vegna húsnæðisátaks í Grafarvogi er nú í kynningu en hægt er að nálgast gögnin í gátt Skipulagsstofnunar. Þar var hægt að skila inn formlegum athugasemdum, ábendingum og umsögnum til 1. nóvember.