Græn fjárfesting í Reykjavík
Opinn morgunfundur um Græna plan Reykjavíkurborgar og græn fjárfestingarverkefni í borginni á næstu árum var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 11. febrúar.
Græna planið
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði fundinn og fór yfir græna fjárfestingaráætlun Reykjavíkurborgar og fyrirtækja sem tengjast borginni. Græna planið er áætlun Reykjavíkurborgar til viðspyrnu heimsfaraldri kórónuveiru en borgin og tengd fyrirtæki munu fjárfesta fyrir tugi milljarða á næstu árum í grænum innviðaverkefnum. Stærstu verkefnin eru Borgarlínan og ný brú fyrir gangandi, hjólandi og Borgarlínuna úr Reykjavík yfir í Kársnes. Með tilkomu brúarinnar verður Kársnesið í raun „nýtt háskólahverfi“ eins og borgarstjóri orðaði það í kynningu sinni.
Kristín Soffía Jónsdóttir framkvæmdastjóri Icelandic Startups hélt erindi um frumkvöðlafyrirtæki sem vinna að grænum lausnum og hafa fengið styrki frá Icelandic Startups. Áhugavert var að heyra að fyrirtækin sem hafa fengið um 150 milljónir í styrki hafa safnað um 600 milljónum króna viðbótarfjármagni á meðal fjárfesta.
Björgvin Ingi Ólafsson frá Deloitte fjallaði um Reykjavík framtíðarinnar árið 2035 sem er ekki svo langt undan og hvaða mælikvarða væri hægt að nota til að fá sem raunsannasta spá af borginni í náinni framtíð.
Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu fjallaði um fyrirhugaðan hringrásargarð á Álfsnesi og fjárfestingar sem gætu orðið þar í svokölluðu hringrásarhagkerfi þar sem verðmæti eru unnin úr úrgangsefnum sem falla til.
Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs fjallaði um ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna í þágu sjálfbærni og grænna verkefna.
Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Tækniseturs flutti kynningu á starfsemi setursins en innan þess starfa fjölmörg sprotafyrirtæki sem vinna að grænum lausnum á heimsmælikvarða.
Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa, var með heilmikla brýningu til íslenskra stjórnvalda um að þau væru að missa af lestinni varðandi samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda sem gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Að loknum erindum frummælenda dró Líf Magneudóttir, formaður umhverfis og heilbrigðisráðs, saman umræðuefni fundarins.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs stýrði fundinum og spurði fyrirlesara valinna spurninga um efnið sem þau kynntu á fundinum.