Breiðagerðisskóli

Grunnskóli,  1.-7. bekkur

Breiðagerði 20
108 Reykjavík

""

Um Breiðagerðisskóla

Breiðagerðisskóli er barnaskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Í skólanum eru um það bil 400 nemendur eða 50 - 60  nemendur í hverjum árgangi. Flestir nemendur skólans koma frá leikskólunum Jörfa, Vinagerði og  Garðaborg. Að loknum 7. bekk flytjast flestir nemendur skólans yfir í Réttarholtsskóla þar sem þeir ljúka grunnskólagöngu sinni.

Skólinn leggur áherslu á að nýta nánasta umhverfi til útikennslu árið um kring. Skólinn er staðsettur í fallegu grónu hverfi í göngufæri við Elliðaárdal. Í skólanum er hátíðarsalur, sundlaug, íþróttasalur og vel skipulögð skólalóð.

Leiðarljós skólans eru menntun - samvinna - vellíðan en í þessum orðum kristallast þau gildi sem skólinn byggir á. Menntun vísar til aukinnar þekkingar og færni sem skólanum er ætlað að veita nemendum sínum. Samvinna vísar til mikilvægi samstarfs allra þeirra sem tilheyra skólasamfélaginu en jákvæð og góð samskipti og samvinna eru forsendur góðs skólabrag. Vellíðan vísar síðan til þess að góð líðan er forsenda þess að ná árangri.

Frístundaheimilið Sólbúar er fyrir börn í 1.-4. bekk og félagsmiðstöðin Bústaðir býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.

 

Starfsemi

Skóladagatal

Hér finnur þú skóladagatal Breiðagerðisskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.

Hverfisgötur Breiðagerðisskóla

Breiðagerðisskóli er hverfisskóli fyrir íbúa í eftirtöldum götum:

Akurgerði, Austurgerði, Ásenda, Ásgarði, Bakkagerði, Básenda, Borgargerði, Breiðagerði, Búðargerði, Bústaðaveg, Byggðarenda, Garðsenda, Grundargerði, Hamarsgerði, Háagerði, Hlíðargerði, Hólmgarði, Hæðargarði, Langagerði, Litlagerði, Melgerði, Mosgerði, Rauðagerði, Réttarholtsvegi, Skógargerði, Sogamýrarbletti, Sogavegi, Steinagerði, Teigagerði, Tunguvegi.

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.