Aldraðir og ofbeldi

Teikning af handabandi tveggja einstaklinga.

Hvað er heimilisofbeldi?

Heimilisofbeldi er ofbeldi á milli skyldra eða tengdra einstaklinga. Skyldir og tengdir einstaklingar eru t.d. núverandi eða fyrrverandi makar, börn, systkini og foreldrar.

Ofbeldið getur átt sér stað bæði inni á heimili brotaþola og utan þess, þ.e. staðsetning ofbeldisins skiptir ekki máli. Það sem skiptir máli eru tengsl brotaþola og geranda.

Heimilisofbeldi getur átt sér stað einu sinni eða oftar.

Heimilisofbeldi gegn öldruðum á sér margar birtingarmyndir. Sem dæmi getur ofbeldið verið andlegt , líkamlegt, kynferðislegt og fjárhagslegt en það getur einnig verið um vanrækslu að ræða.

Ef þú ert í bráðri hættu hringdu í 112

Tengsl við geranda geta oft verið flókin

Kannski hefur þú verið í ofbeldissambandi með manneskju í mörg ár, hvort sem þið eruð gift, í sambúð eða annað.

Kannski finnst þér erfitt að hugsa til þess að slíta sambandinu vegna annarra fjölskyldu- og tilfinningatengsla sem eru til staðar, eins og sambandi við börn, barnabörn og aðra fjölskyldumeðlimi.

Kannski vilt þú ekki „rugga bátnum“ eða þú hefur ekki orku til að takast á við breytingar. Kannski óttast þú aukið ofbeldi ef þú hvetur þann sem beitir ofbeldi til að leita sér aðstoðar. Kannski óttast þú hver viðbrögð fjölskyldu þinnar eru ef þú skilur, hættir í sambandi eða slítur einhver önnur fjölskyldutengsl.

Algengt er að aldraðir brotaþolar hafi tengst geranda í langan tíma, hvort sem um er að ræða samband við maka eða aðra nána fjölskyldumeðlimi.

Nokkrar tölfræðilegar upplýsingar um heimilisofbeldi og aldraða

  • Einn af hverjum sex einstaklingum eldri en 60 ára hefur orðið fyrir einhvers konar ofbeldi.
  • Fólk sem er eldra en 60 ára er líklegra til þess að verða fyrir ofbeldi af hálfu skyldra eða tengdra aðila en annað fólk sem er yngra.
  • Talið er að einvörðungu sé greint frá um fjórum prósentum tilvika sem lúta að heimilisofbeldi þar sem aldraðir eru brotaþolar.
  • Eldri brotaþolar eru líklegri til þess að búa með gerandanum en þeir sem yngri eru.
  • Eldri brotaþolar eru ólíklegri til þess að reyna að fara frá geranda en þeir sem yngri eru.
  • Aðeins um 30% aldraðra brotaþola kynferðisofbeldis tilkynna brotið.

Heilsufar, umönnunaraðilar

Heilsufarsvandamál aldraðra einstaklinga geta gert þá berskjaldaðri og aukið líkurnar á því að verða fyrir heimilisofbeldi.

Ef til vill er heilsu þinni farið að hraka. Kannski treystir þú á maka eða utanaðkomandi aðila eins og  fjölskyldumeðlimi eða aðra umönnunaraðila til þess að aðstoða þig við daglegt líf.

Það getur fylgt því álag að hugsa um aldraðan og veikan einstakling. Þetta getur valdið streitu og orðið til þess að einstaklingur sem ekki hefur sýnt ofbeldishegðun áður missir þolinmæðina og beitir þann sem hann annast ofbeldi. Einnig eru dæmi um að einstaklingur sem aldrei hefur beitt ofbeldi geri það eftir að hann veikist. Þetta á stundum við þá sem þjást af elliglöpum.

Kannski ert þú háð/ur maka þínum og/eða öðrum nánum fjölskyldumeðlimum þegar kemur að daglegum athöfnum. Kannski nýtir maki þinn, eða aðrir fjölskyldumeðlimir, sér aðstæður þínar til þess að beita þig ofbeldi.

Heilsufarsvandamál geta gert þér erfiðara um vik að leita þér aðstoðar. Kannski kemst þú ekki út úr húsi með auðveldum hætti eða ert með þeim sem beitir ofbeldinu  öllum stundum og átt því fá eða engin tækifæri til að tala við aðra í einrúmi um það sem er í  gangi.

Kynslóðarviðhorf

Kannski hefur þú alist upp við þau viðhorf að það sem gerist á bak við luktar dyr heimilisins sé einkamál og ekki við hæfi að ræða það við aðra.

Kannski var lítil umræða um heimilisofbeldi og þá aðstoð sem hægt var að fá á þeim tímum sem þú varst að alast upp á. 

Eldri brotaþolar eru margir hverjir ekki meðvitaðir um þá aðstoð sem þeim býðst þar sem stuðningurinn var ekki til staðar þegar þau voru yngri eða fór ekki hátt. 

Mundu að það er aldrei of seint að leita sér aðstoðar. Smelltu til að lesa upplýsingar um aðstoð fyrir brotaþola

Hvaða áhrif getur heimilisofbeldi haft?

Heimilisofbeldi hefur alvarlegar afleiðingar fyrir brotaþola/þolendur. Eldra fólk er í veikari stöðu en yngra fólk þegar kemur að heimilisofbeldi, meðal annars vegna þess að eldra fólk getur verið viðkvæmara fyrir áreiti, verið veikburða og er oftast lengur að ná sér eftir ofbeldi en yngri brotaþolar.

Sama hvernig ofbeldi á sér stað, hvort sem það er líkamlegt, andlegt, kynferðislegt, fjárhagslegt eða annað, þá getur það haft djúpstæð áhrif á andlega og líkamlega líðan.

Þú, sem brotaþoli, getur fundið fyrir mikilli streitu, vanlíðan og einmanaleika sem getur haft neikvæð áhrif á andlega heilsu þína sem og aðra þætti í lífi þínu, eins og á aðra sjúkdóma, vitræna starfsemi þína og líkamlega færni.

Mikilvægt er að þú leitir aðstoðar og stuðnings sem fyrst, sértu að verða fyrir ofbeldi, þar sem ofbeldi hefur áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu. 

Það getur verið erfitt að stíga fyrstu skrefin. Oft eru þau sem búa við ofbeldi úrvinda, hrædd og telja sér trú um að hlutirnir muni lagast. Allt eru þetta þekktar tilfinningar og allir sem veita stuðning og ráðgjöf þekkja þessi einkenni og munu aldrei álasa þér fyrir að hafa ekki gert eitthvað fyrr.

Þú, sem brotaþoli, átt rétt á því að lifa öruggu lífi í öruggu umhverfi. Þú átt rétt á að nýta þér þau úrræði og sem eru til staðar. Þú átt rétt á að leita þér aðstoðar og þú átt rétt á að fá aðstoð.

Taka skal fram að það er ekkert sem afsakar ofbeldishegðun.

Býrð þú við ofbeldi?

Stundum er ekki einfalt að átta sig á því hvort við búum við ofbeldi. Athugaðu að hér er ekki um próf að ræða sem gefur niðurstöðuna „já“ eða „nei“. Eftirfarandi fullyrðingar geta hins vegar hjálpað þér við að átta þig á eðli sambandsins eða tengsla og hvort ráðlegt sé að leita sér ráðgjafar.

  • Hefur þú hræðst maka þinn eða einhvern sem tengist þér náið?
  • Hefur þú hræðst viðkomandi þegar hann/hún/hán er undir áhrifum áfengis eða eiturlyfja?
  • Hefur viðkomandi reynt að koma í veg fyrir að þú farir þangað sem þú vilt fara?
  • Hefur viðkomandi reynt að koma í veg fyrir að þú stundir áhugamál?
  • Skipar viðkomandi þér fyrir?
  • Krefst einstaklingurinn þess að þú hlýðir sér?
  • Hefur viðkomandi sagt (beint eða óbeint) að þú getir ekki bjargað þér án hans/hennar?
  • Hefur maki þinn ásakað þig um framhjáhald?
  • Er viðkomandi gagnrýninn á þig, vini þína og/eða fjölskyldu?
  • Hefur maki sagt að „eitthvað sé að þér”, jafnvel að þú sért „geðveik/ur/t”?
  • Hefur þú óttast maka þinn eða aðra manneskju þér nákomna undir einhverjum kringumstæðum?
  • Verður viðkomandi reiðst ef þú mótmælir eða ert á annarri skoðun?
  • Hefur viðkomandi gert lítið úr þér fyrir framan aðra?
  • Er það sem aflaga fer oftast þér að kanna?
  • Hefur viðkomandi yfirráð yfir fjármálum þínum?
  • Hefur viðkomandi aðgang að rafrænu skilríkjunum þínum?
  • Hefur þér fundist þú þurfa að stunda kynlíf til að „hafa makann góðan?“
  • Hefur viðkomandi viljandi eyðilagt persónulegar eigur þínar?
  • Hefur viðkomandi hótað að birta myndir af þér án þíns samþykkis?
  • Hefur maki eða annar þér nákominn ógnað þér með svipbrigðum, hreyfingum eða bendingum?
  • Hefur viðkomandi hótað að skaða þig eða sjálfan sig?
  • Hefur viðkomandi öskrað á þig?
  • Hefur viðkomandi ýtt við þér/hrint þér eða slegið til þín eða einhvers sem þér þykir vænt um. Þetta á ekki bara við fólk heldur líka gæludýr.
  • Hefur viðkomandi hótað að skaða sig og/eða svipta sig lífi?
Teikning af afleggjara í blómapotti.

Nokkrar tegundir af ofbeldi

Hér á eftir fara lýsingar á mismunandi tegundum ofbeldis sem koma fram hér á eftir eru dæmi og ná ekki yfir allt það ofbeldi sem getur átt sér stað. 

 

Líkamlegt ofbeldi

Líkamlegt ofbeldi felur í sér líkamlegar árásir eins og að slá, ýta, lemja, sparka eða taka kverkataki. Ofbeldið hefur oft í för með sér líkamleg meiðsli og sjáanlega áverka, en þó ekki alltaf.

Dæmi:

Sigurður og Jónína hafa búið saman lengi. Hann hefur alltaf verið skapstór að hennar sögn en eftir að Jónína var að ná sér eftir mjaðmaaðgerð og gat ekki sinnt honum eins og hún hafði gert áður var hann oft argur og sló hana og sparkaði í hana þegar honum fannst hún vera eitthvað svifasein.

María sér um og aðstoðar aldraðan afa sinn við dagleg verkefni. Oft á tíðum missir María þolinmæðina þar sem afi hennar hreyfir sig hægt og á oft erfitt með að skilja hvað hún er að biðja hann um að gera. Það kemur fyrir að María ýtir við afa sínum til að fá hann til að ganga hraðar og þá hefur það gerst að hann dettur og meiðir sig.

Andlegt ofbeldi

Andlegt ofbeldi getur meðal annars verið ógnanir, niðurlæging, hótanir, að hunsa og að einangra frá fjölskyldu og vinum. Andlegt ofbeldi getur valdið tilfinningalegum og sálrænum skaða. Andlegt ofbeldi skilur ekki eftir sig sjáanlega áverka

Dæmi:

Apinya er upphaflega frá Tælandi. Hún býr hjá dóttur sinni og fjölskyldu hennar. Eiginmaður dóttur hennar, Tómas, er ávallt góður og natinn við Apinya þegar aðrir sjá til en þegar þau eru tvö ein er hann grimmur og andstyggilegur við hana. Hann kallar hana gömlu grjónaætuna, gerir grín að því hvernig hún talar íslensku og gerir lítið úr öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur.

Vanræksla

Vanræksla á sér stað þegar grunnþörfum einstaklings er ekki sinnt eða þegar annar aðili kemur í veg fyrir að hinn aldraði geti sinnt grunnþörfum sínum og er það meðvituð vanræksla. Einnig getur verið um ómeðvitaða vanrækslu að ræða, eins og þegar umönnunaraðili er ekki fær um að sjá um hinn aldraða. Grunnþarfir eru til dæmis næring, húsaskjól, öryggi, aðstoð við persónulegt hreinlæti og þess háttar.

Dæmi:

Sunna bjó ein á heimili sínu en með hækkandi aldri fór hún að eiga erfitt með að  hugsa um sjálfa sig, hún gleymdi til dæmis oft að borða og drekka nægan vökva. Sonur hennar og eiginkona hans buðu henni að flytja til sín svo þau gætu hjálpað henni með daglegar athafnir. Hjónin unnu bæði mikið og voru sjaldan heima og því var Sunna mikið ein. Einn daginn þegar þau komu heim frá vinnu fundu þau Sunnu meðvitundarlausa á gólfinu inni í stofu. Þau fóru með hana til læknis og í ljós kom að Sunna var alvarlega vannærð.

Kynferðislegt ofbeldi

Kynferðislegt ofbeldi getur verið nauðgun eða önnur kynferðismök sem eru án vilja eða samþykkis viðkomandi. Að sýna viðkomandi klámfengið efni án vilja viðkomandi eða að neyða viðkomandi til þess að horfa á kynlífsathafnir eða taka kynferðislegar myndir af viðkomandi og hóta að dreifa þeim. Allt er þetta dæmi um kynferðislegt ofbeldi. 

Dæmi:

Heilsu Stefáns hefur hrakað mikið síðustu ár. Hann heyrir ekki jafn vel og áður, hann hreyfir sig hægt og þarf aðstoð við dagleg verkefni. Hann á oft erfitt með að halda þræði og fólk skilur ekki alltaf það sem hann er að segja. Stefán býr heima hjá sér en fær aðstoð frá umönnunaraðilum sem koma á heimili hans. Einn starfsmaður sem kemur á heimili Stefáns áreitir hann kynferðislega. Hann  káfar á kynfærum hans þegar hann er að baða hann og lætur hann snerta sín kynfæri. Stefán getur heilsu sinnar vegna ekki veitt samþykki og á erfitt með biðja um hjálp. Hann reynir að segja öðrum umönnunaraðilum frá ofbeldinu en þau annað hvort trúa honum ekki eða skilja hann ekki.

Fjárhagslegt ofbeldi

Fjárhagslegt ofbeldi/misnotkun getur meðal annars verið þjófnaður, svik, að taka og/eða eyða pening brotaþola án samþykkis, neita brotaþola um aðgang að eigin fjárhag og falsa undirskriftir.

Dæmi:

Jóna býr ein á eigin heimili. Elsta barnabarn hennar hjálpar henni að sinna alls konar erindum sem reynast Jónu erfið, eins og að fara í matvörubúð og í bankann. Jóna lét barnabarnið sitt fá aðgang að heimabankanum sínum og rafrænu skilríkjunum sínum svo það gæti meðal annars borgað reikninga og tekið út pening til þess að kaupa matvöru. Mörgum mánuðum seinna, þegar Jóna þurfti á pening að halda kom í ljós að barnabarnið hennar hafði reglulega millifært verulegar fjárhæðir af reikningnum hennar Jónu, yfir á sig og það var lítið sem stóð eftir á reikningi Jónu.

Smelltu til að lesa meira um fjárhagslegt ofbeldi

Hvað er hægt að gera til að minnka líkurnar á ofbeldi

Eins og allir aðrir eiga aldraðir einstaklingar að hafa þann möguleika á að lifa í öruggu umhverfi. Enginn á að búa við ofbeldi eða þurfa að óttast að verða fyrir ofbeldi.

Hvað getur þú gert?

  • Þú getur reynt að vera í góðu sambandi við fjölskyldu og vini.
  • Þú getur reynt að mynda tengsl við fólk sem er að veita þér þjónustu þannig að þú eigir auðveldara með að biðja um stuðning eða ráðgjöf ef þú þarft á að halda.
  • Þú getur gengið úr skugga um að fjármál þín séu í lagi.
  • Þú getur reynt að taka þátt og verið virk/ur í félagsstarfi.

Gerendur

Beitir þú ofbeldi?

Á eitthvað að neðantöldu við um þig sem sinnir öldruðu skyldmenni eða öldruðum einstaklingi?

  • Hefur þú öskrað á aldraðan einstakling eða uppnefnt?
  • Hefur þú hótað öldruðum einstaklingi að beita hann ofbeldi?
  • Hefur þú niðurlægt aldraðan einstakling?
  • Hefur þú hrint, slegið, eða haldið öldruðum einstaklingi föstum?
  • Hefur þú reynt að fá aldraðan einstakling til þess að taka þátt í kynferðislegum athöfnum sem viðkomandi kærir sig ekki um?
  • Hefur þú aðgang að fjármálum aldraðs skyldmenni/aldraðs einstaklings og misnotar þér þann aðgang ?
  • Reynir þú að hindra það að aldraður einstaklingur eigi í samskiptum við annað fólk?
  • Hefur þú komið í veg fyrir að viðkomandi fara til læknis án þín?

Smelltu til að lesa upplýsingar fyrir gerendur ofbeldis

Aldraðir og hinseginleiki

Heimilisofbeldi á sér sömu birtingamyndir í hinsegin samböndum og öðrum samböndum. Hins vegar getur ofbeldið líka birst með öðrum hætti. Reykjavíkurborg hefur unnið efni um það sem má er hér að neðan.

Það sem er mikilvægt að hafa í huga er að aldraðir hinsegin einstaklingar geta mætt mun meira ofbeldi og einelti af hálfu annarra íbúa á t.d. hjúkrunarheimilum en þeir sem eru ekki hinsegin. Dæmi eru um að einstaklingar “hafi farið aftur inn í skápinn” við slíkar aðstæður, eða upplifi að þau þurfi að fela hinseginleika sinn fyrir íbúum eða starfsfólki. Það getur leitt til þess að þau fá ekki viðeigandi þjónustu eða upplifi sig utanveltu. Það er mikilvægt að við stöndum öll vörð um rétt einstaklinga, líka aldraðra einstaklinga, til að vera hinsegin í öllum þeim myndum sem það birtist – og við séum sömuleiðis meðvituð um sérstaka þjónustu um stuðning sem þau kunna á að halda.

Teikning af karli í jakkafötum með fána hinsegin fólks.