Fjárhagslegt ofbeldi og aldraðir

Allir geta lent í svikum, en: 

  • Eldra fólk á oft meira sparifé en yngra fólk og ef þau lenda í svikum þá er tapið oft meira en hjá yngri fólki.   
  • Eldra fólk á almennt meiri eignir en yngra fólk og eru þar af leiðandi með betra lánshæfismat sem getur leitt til þess að svik séu fjármögnuð með lántöku.
  • Eldra fólk getur sótt um útgreiðslu á lífeyri, fær stundum óvæntan arf eða slysabætur. Ef þessum fjármunum er stolið þá hefur það afgerandi áhrif á lífsgæði næstu ára.

Aðstæður aldraðra

Eldra fólk ólst ekki upp með þeirri tækni sem er til staðar í dag og hún er sífellt að breytast og heimurinn að verða stafrænni. Aldraðir eru því líklegri til að verða fyrir netsvikum og líka "tækniþjónustu" svikum þar sem t.d. svikahrappar segist vera að hringja frá tæknifyrirtæki þar sem tölvan þeirra sé hökkuð. Markmiðið er að taka yfir tölvu viðkomandi með yfirtökuhugbúnaði og stela fjármunum. 

Þegar eldra fólk stendur á tímamótum í lífi sínu, er  að minnka við sig vinnu eða hætta að vinna þá hefur það meiri frítíma. Þessi breyting og að hitta ekki lengur vinnufélaga getur bæði leitt til einmanaleika og leiða. Þegar fólk er einmana þá er það líklegra að verða fyrir ástarsvikum. Fólki sem leiðist sækir oft á tíðum í aukna spennu, t.d. með að grípa fjárfestingatækifæri sem reynast svo vera svindl. Svikahrappar eru mjög færir í að bera kennsl á slíkar, óuppfylltar, tilfinningalegar þarfir hjá brotaþolum sínum.

Almennt þá er fólk útsettara fyrir svikum nokkrum mánuðum eða árum eftir alvarleg slys eða áföll í lífinu. Það eru meiri líkur á að við lendum í áföllum á lífsleiðinni eftir því sem við verðum eldri.

Fjárhagslegt ofbeldi af hálfu fjölskyldumeðlims. Þar sem eldra fólk ræður ekki alltaf við nútímatækni getur það þurft að fá aðstoð ættingja. Slæmt heilsufar getur einnig orðið þess valdandi að það þurfi aðstoð.  
 
Dæmi um slíkt ofbeldi getur verið t.d. fullorðið barn sem "sér" um fjárhag foreldri síns og uppfyllir skyldur sínar að ákveðnu leyti, t.d. kaupir og sækir lyf, matvörur og fleira fyrir foreldri en stelur jafnframt rafrænum skilríkjum foreldrisins, tekur lán í þeirra nafni til að nýta í eigin neyslu, eða gengur á sparifé foreldrisins.
Þetta skapar mjög erfiðar aðstæður þar sem foreldið er háð barninu og finnst vænt um það og þarf auk fjárhagslegs taps að horfast í augu við svik.  

Bankarnir eru með alls konar leiðir til að mæta netsvikum. Þú getur valið það sem er þægilegast fyrir þig, hringja eða senda póst. Hér eru hlekkir á upplýsingar stærstu bankana um það hvernig er hægt að varast netsvik og eða bregðast við þeim. Mundu að það geta allir lent í netsvikum en það er mikilvægt að bregðast við.

Dæmi um fjárhagslegt ofbeldi

Fyrir nokkrum mánuðum síðan fékk Andri símtal frá ókunnum aðila. Spurt var hvort hann vildi styrkja fátæk börn í útlöndum. Andra fannst það sjálfsagt mál og spurði hvað hann gæti gert. Sá sem hringdi bað Andra um kennitölu hans og allar kortaupplýsingar svo hann gæti verið í samskiptum við bankann. Andri trúði þessu og lét aðilann fá þær upplýsingar sem hann þurfti á að halda. Nokkru seinna kom í ljós að þessi aðili hefði notað upplýsingarnar sem Andri gaf honum til þess að taka verulegar fjárhæðir út af kortinu hans.