Landupplýsingar (LUKR)

Landupplýsingar hafa umsjón með öllum gagnagrunnum sem innihalda landtengdar upplýsingar. Öflun, viðhald, úrvinnsla og afgreiðsla landupplýsinga eru aðalverkefnin, en deildin ber einnig ábyrgð á stjórn og rekstri LUKR, landmælingum og útgáfu mæliblaða og lóðauppdrátta.

Helstu verkefni landupplýsinga eru

  • Gerð og viðhald mæliblaða og lóðauppdrátta
  • Landmælingar
  • Viðhald hnita- og hæðakerfis
  • Umsjón með staðgreini
  • Hnitsetning eldri lóða
  • Stjórn og rekstur LUKR
  • Uppbygging og viðhald gagnagrunna og tengitaflna LUKR
  • Umsjón með Borgarvefsjá og Skipulagssjá
  • Öflun loftmynda
  • Kortagerð
  • Skráning, úrvinnsla og afgreiðsla landupplýsinga
  • Uppfærsla á tölum svæðisskipulags

Úttektavefur LUKR

Landupplýsingakerfi Reykjavíkur geymir viðamiklar landfræðilegar upplýsingar um götur, byggingar, lóðir, hæðarlínur, lagnakerfi og fleira í Reykjavík. Þessi gögn eru ókeypis og á stafrænu formi sem notendum gefst kostur á að sækja í gegnum úttektarsíðu.
Til að geta tekið út gögn þarf fyrst að skrá sig inn með íslykli.

Reykjavík í þrívídd

Landupplýsingar eru að færast yfir í þrívíddarumhverfi og opnar það marga nýja möguleika. Á undanförnum árum hefur verið unnið talsvert við uppbyggingu þrívíddarlíkans af Reykjavík og nú er hægt að skoða miðborgina í þrívídd. Húsin eru teiknuð í Sketchup, langflest af Páli Heimi Pálssyni, og má nálgast þau í 3D Warehouse.

 

Hjá Landupplýsingum eru einnig til húskubbar með hæðarupplýsingum, líkt og sjá má þegar Reykjavík er skoðuð í Google Earth, en þau gögn eru frá árinu 2009 og gefa aðeins grófa mynd af útliti húsa.

""

Mælingar

Landupplýsingar á umhverfis- og skipulagssviði annast gerð og útgáfu mæliblaða og lóðauppdrátta. Skrifstofa framkvæmda og viðhalds mannvirkja annast gerð og útgáfu hæðarblaða.

Upplýsingar um gagnaúttekt

Gögn LUKR eru geymd í landshnitakerfinu ISN93.  Það byggist á keiluvörpun Lamberts með tveim snertibaugum, í 64° 15' og 65° 45'.  Úttektarkerfið býður einnig upp á að varpa gögnunum yfir í Reykjavíkurhnitakerfið en það kann að lengja lítillega þann tíma sem fer í vinnslu úttektar. Núverandi úttektarform gagna miðast við afhendingu á shape-formi (.shp) og dxf-formi (.dxf).

Gjaldfrjáls gögn úr LUKR

Á vefnum geta notendur á fljótlegan hátt nálgast gjaldfrjáls gögn úr gagnagrunnum LUKR á shape formi. Öllum er frjálst að afrita þessi gögn og nota í eigin þágu.

 

Viðkomandi lýsigögn má nálgast á síðu Landmælinga Íslands. Gögnin er hægt að skoða í Borgarvefsjánni og gott að gera það áður en gögnin eru afrituð.

Hvaða gögn voru tekin úr gagnagrunni?

Tilkynna skal í tölvupósti í gegnum netfangið lukr@reykjavik.is hvenær og hvaða gögn voru tekin úr gagnagrunni LUKR.