Vetrarhátíð - Ljósaslóð
Ljósaslóð
Ljósaslóð Vetrarhátíðar verður í lykilhlutverki en það er gönguleið frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og á Austurvöll, sem er vörðuð með ljóslistaverkum.
Ljóslistaverkin á Vetrarhátíð í ár, eru alls 18 talsins og lýsa upp skammdegið á skapandi hátt og mynda skemmtilega gönguleið.
Upplifðu listaverk utandyra með þínum nánustu á þínum eigin hraða.
Ljóslistaverk og uppákomur þeim tengdar verða í gangi öll kvöld yfir hátíðina frá klukkan 18:30-22:30.