Nýsköpunarvikan 2025

Nýsköpunarvikan 2025

Nýsköpunarvikan er alþjóðlegur viðburður í Reykjavík (e. Iceland Innovation Week) þar sem fyrirtækjum og frumkvöðlum gefst kostur á að standa fyrir nýsköpunartengdum viðburðum, fyrirlestrum og uppákomum með margs konar snertiflötum.

Reykjavíkurborg er einn af bakhjörlum Nýsköpunarvikunnar. 

Þátttaka borgarinnar

Reykjavíkurborg styður Nýsköpunarviku og tekur einnig þátt í dagskrá.
 

Reykjavik Science City bás í Kolaporti: Unnin í samstarfi við Íslandsstofu. Sjá nánar.

 

Stafrænt ráð fundar í Kolaportinu þar sem Reykjavíkurborg og Íslandsstofa kynna verkefni undir merkjum Reykjavík Science City. Gestir fá tækifæri til samtals og tengslamyndunar.

 

Reykjavik Startup Guide: Útgáfupartý á nýsköpunarviku og viðburður í bás í tengslum við hann. Dóra Björt Guðjónsdóttir tekur þátt í pallborði. Sjá nánar.

 

Nordic GovTech Alliance Meet-Up: Unnið í samstarfi við Fjársýsluna. Tveggja daga viðburður, mánudag og þriðjudag og kemur í áframhaldi af vinnustofu með Climate Kic sem haldin var í lok síðasta árs.

Skrautmynd úr atvinnu- og nýsköpunarstefnu

Nýsköpun hjá borginni

Íbúar, starfsfólk og samstarfsaðilar borgarinnar nálgast áskoranir og tækifæri með skapandi og lausnamiðaðri hugsun. Reykjavíkurborg nýtir nýsköpun markvisst til að bæta þjónustu, auka skilvirkni og skapa verðmæti fyrir samfélagið.

Á þessari síðu kynnum við nokkur verkefni sem sýna hvernig nýsköpun er beitt í þágu borgarbúa og framtíðar Reykjavíkur.

 

 

Nýtt vefsvæði Reykjavíkurborgar veitir yfirsýn yfir húsnæðisuppbyggingu

Reykjavíkurborg hefur opnað nýtt vefsvæði sem veitir íbúum og hagsmunaaðilum skýra og aðgengilega yfirsýn yfir húsnæðisuppbyggingu í borginni. Þar má sjá kortlagða þróun byggðar, upplýsingar um verkefni í gangi og framtíðaráform í hverfum borgarinnar. Markmiðið er að auka gagnsæi, bæta upplýsingamiðlun og gera borgarbúum kleift að fylgjast með hvernig borgin mótast og þróast.

Nýsköpunarvikan - 1

Betri borg fyrir börn – samþætt þjónusta í þágu barna, ungmenna og fjölskyldna

Betri borg fyrir börn miðar að því að bæta þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í skóla- og frístundastarfi. Færa þjónustuna í auknum mæli í skólaumhverfi barna og ungmenna, veita viðeigandi stuðning sem fyrst og þétta samstarf skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs í þjónustumiðstöð hverfisins.

Teikning af hópi hlæjandi barna.

Útinám og útivist í hjarta skóla- og frístundastarfs

Miðstöð útivistar og útináms (MÚÚ) styrkir kennara og leiðbeinendur til að nýta útivist og útinám í skóla- og frístundastarfi, stuðlar að fjölbreyttri og lifandi námsreynslu barna og ungmenna, og eykur tengsl þeirra við náttúruna í nærumhverfi borgarinnar.

MÚÚ

Mixtúra eflir stafræna sköpun og nýsköpun í námi, kennslu og leik

Mixtúra, sköpunar- og tækniver skóla- og frístundasviðs styður við stafræna tækni í námi, kennslu, leik og störfum. Mixtúra er staðsett á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þar má sækja starfsþróun og ráðgjöf, kynna sér sköpunarsmiðjuna og sækja náms- og kennslugögn í Búnaðarbanka SFS.

Teikning af kennara og barni að vinna með þrívíddarprentara.

Fríbúð í Gerðubergi stuðlar að endurnotkun og hringrásarhagkerfi

Í Gerðubergi hefur opnað fríbúð þar sem íbúar geta gefið og sótt notaða muni, skilað úrgangi í skilakassa og fengið lán verkfæri í sjálfsafgreiðsluskápum frá Hringrásarsafninu. Fríbúðin, sem er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins, umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og SORPU, býður einnig fjölbreytta dagskrá með námskeiðum í viðgerðum, endurnotkun og umhverfisvitund. Hún er staðsett á efri hæð Gerðubergs og fylgir opnunartíma hússins – öll eru velkomin.

Fríbúðin

Gervigreind og alþjóðlegt samstarf styðja við nýsköpun í skóla- og frístundastarfi

Skrifstofa nýsköpunar og þróunar á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, vinnur að fjölbreyttum verkefnum sem efla fagmennsku og nýsköpun, meðal annars með umsóknum um alþjóðlega styrki, verkefnastjórnun og skýrslugerð. Gervigreind er mikilvægur stuðningur í þessari vinnu, þar sem hún auðveldar utanumhald, upplýsingasöfnun og úrvinnslu gagna í flóknum verkefnum. Þessi verkefni hafa styrkt kennslu og starfsþróun, opnað börnum og ungmennum dyr að nýjum menningarheimum og skapað ný tækifæri til náms og þróunar.

Teikning af kennurum við störf

Hringrásarsafnið stuðlar að endurnotkun og sjálfbærri neyslu

Hringrásarsafnið er nýsköpunarverkefni sem stuðlar að sjálfbærari neyslu með því að gera íbúum kleift að fá ýmis nytsamleg tæki og hluti að láni í stað þess að kaupa nýtt. Verkefnið er samstarf Borgarbókasafnsins og Munasafns RVK Tool Library og byggir á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, þar sem áhersla er lögð á endurnotkun, deilingu og minni sóun. Hringrásarsafnið er liður í umhverfis- og samfélagsábyrgð borgarinnar og opnar nýjar leiðir til að sameina þjónustu, nýsköpun og sjálfbærni í þágu íbúa og umhverfisins.

Reykjavík Tool Library

Skjáheimsóknir auka öryggi og tengsl íbúa

Skjáheimsóknir eru þjónusta Reykjavíkurborgar þar sem félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar eða aðrir starfsmenn heilbrigðis- og velferðarþjónustu heimsækja íbúa með fjarfundarbúnaði í gegnum skjá. Markmiðið er að styrkja öryggi, draga úr félagslegri einangrun og auðvelda samskipti við þjónustuaðila. Þjónustan nýtist meðal annars við eftirfylgd, lyfjagjöf, ráðgjöf og samtöl við notendur í eigin heimili. Skjáheimsóknir eru hluti af velferðartæknilausnum borgarinnar sem stuðla að sjálfstæðri búsetu og betri lífsgæðum íbúa.

Nýsköpun í Reykjavík

Nýsköpun er ekki skrautfjöður í hatti. Hún er hluti af sjálfsmynd Reykjavíkur og mótar hvernig við sem búum og störfum í borginni nálgumst viðfangsefnin okkar. Við ætlum að skapa jarðveg þar sem nýjar hugmyndir geta blómstrað.

Atvinnu- og nýsköpunarstefna Reykjavíkurborgar 2022-2030

Hvers vegna nýsköpunarvika?

Markmiðið með aðkomu Reykjavíkurborgar að nýsköpunarviku er að auka aðgengi og sýnileika nýsköpunar þvert á atvinnugreinar og fyrirtæki og frumkvöðlar fá tækifæri til að deila mikilvægri þekkingu. 

 

Hátíðin vekur jafnframt athygli á Reykjavíkurborg sem nýsköpunarborg, laðar til sín fjármagn, fjárfesta og erlenda sérfræðinga á sviði nýsköpunar og grænna lausna og skapar samlegðaráhrif með öðrum verkefnum líkt og Vísindaborgin Reykjavík (e. Reykjavík Science City).

Græna planið - Gott umhverfi fyrir atvinnulíf og nýsköpun

Hvar fæ ég frekar upplýsingar?

Upplýsingar um Nýsköpunarvikuna má nálgast á Iceland Innovation Week.

Viltu vita meira eða ertu með athugasemd? Sendu tölvupóst á athafnaborgin@reykjavik.is