Leggja bíl í gjaldskyld stæði
Upplýsingar um gjaldsvæði borgarinnar, verð, greiðsluleiðir, bílastæði fyrir hreyfihamlaða, gjaldsvæðismerkingar og bílahús.
Hér er hægt að greiða fyrir gjaldskyld bílastæði í borgarlandi með netgreiðslu og skrá P-kort í stæði.
Hvað kostar að leggja bílnum?
Í Reykjavík eru fjögur mismunandi gjaldsvæði og verðlagning og gjaldskyldutími mismunandi. Svæðin eru P1, P2, P3 og P4.
Fjögur mismunandi gjaldsvæði
P1
- 660 krónur á klukkustund.
- Kl. 9–20 virka daga og kl. 10–20 laugardaga og sunnudaga
- Hámarkstími er 3 klst.
P2
- 240 krónur á klukkustund.
- Kl. 9–20 virka daga og kl. 10–20 laugardaga og sunnudaga
P3
- 240 krónur á klukkustund fyrstu tvær klukkustundirnar. Eftir það 70 krónur
- Kl. 9–18 virka daga
P4
- 240 krónur á klukkustund
- Kl. 8–16 virka daga
Fólk með stæðiskort hreyfihamlaðra (P-kort) greiðir ekki fyrir gjaldskyld bílastæði.
Ekki þarf að greiða fyrir stæði í merktu rafhleðslustæði ef bíll er í hleðslu.
Ekki er gjaldskylda á eftirfarandi dögum:
Nýársdagur, skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, annar í páskum, sumardagurinn fyrsti, 1. maí, uppstigningardagur, hvítasunnudagur, annar í hvítasunnu, 17. júní, frídagur verslunarmanna, jóladagur, annar í jólum.
Bílastæðakort fyrir deilibílaleigur
Reglurnar gilda fyrir deilibílaleigur sem starfrækja einnar ferðar deilibíla.
- Deilibílakort kostar 1.500 krónur á mánuði
- Reglur um bílastæðakort fyrir deilibíla
Bílastæðakort fyrir rekstraraðila
Bílastæðakort fyrir rekstraraðila er fyrir aðila sem stunda rekstur skv. atvinnugreinaflokkun ÍSAT nr 47 eða 56 að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
- Rekstraraðilakort kostar 20.000 krónur á mánuði
- Reglur um bílastæðakort fyrir rekstraraðila
Greiðsluleiðir
Þegar verið er að leggja er hægt að greiða fyrir stæðið með því að:
- Borga í stöðumæli með mynt, korti eða síma.
- Borga með rafrænum greiðsluleiðum (öppum) í síma.
- Borga á vefnum (netgreiðsla)
Greiðsluöpp
Bílastæðasjóður hvetur viðskiptavini að kynna sér vel notkunarskilmála greiðsluappa við upphaf notkunar. Þú getur sótt greiðsluöppin gjaldfrjálst í App Store eða Google Play.
EasyPark
Þú getur notað þjónustuna á öllum gjaldskyldum svæðum á vegum Reykjavíkurborgar með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt.
EasyPark virkar einnig í bílahúsum Reykjavíkur.
Parka
Þú getur notað þjónustuna á öllum gjaldskyldum svæðum á vegum Reykjavíkurborgar með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt.
Parka virkar einnig í bílahúsum Reykjavíkur.
SíminnPay
Þú getur notað þjónustuna á öllum gjaldskyldum svæðum á vegum Reykjavíkurborgar með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt.
Skrá P-kort í stæði
Sérmerkt stæði
Sérmerkt stæði, sem stundum eru kölluð P-stæði gefur fólki með hreyfihömlun leyfi fyrir sérmerktu stæði við húsið sitt í Reykjavík.
P-kort
P-kort gefur fólki með hreyfihömlun leyfi til að leggja í öll sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða til dæmis fyrir utan verslanir og stofnanir.
Sótt er um P-kort (stæðiskort fyrir hreyfihamlaða) á island.is. Byrjað er á að útvega læknisvottorð sem læknir skilar inn rafrænt til sýslumanns. Síðan er valið hvort sækja eigi kortið á valda skrifstofu sýslumanns eða fá það sent heim.
Bílahús
Reykjavíkurborg rekur sjö bílahús í miðborginni. Bílahúsin eru opin alla daga klukkan 7-24, fyrir utan Bergstaði sem er opið allan sólarhringinn. Í bílahúsunum er hægt að leggja til skemmri tíma eða sækja um langtímastæði (áskrift).
Gjaldskrá bílahúsa
Skammtímastæði Stjörnuporti og Vitatorgi
- 190 krónur fyrsta klukkustund
- 140 krónur hver klukkustund eftir það
Gjald allan sólarhringinn
Skammtímastæði Kolaport, Ráðhúsi, Traðarkoti og Vesturgötu
- 280 krónur fyrsta klukkustund
- 150 krónur hver klukkustund eftir það
Gjald allan sólarhringinn
Skammtímastæði Bergstaðir
Miðhæð Bergstaða er opið almenningi sem gjaldskyldusvæði P1.
P1
- 660 krónur á klukkustund.
- Kl. 9–20 virka daga og kl. 10–20 laugardaga og sunnudaga
- Hámarkstími er 3 klst.
Langtímstæði (áskrift - mánaðargjald)
- Bergstaðir efri hæð 13.500 krónur
- Bergstaðir neðri hæð 20.700 krónur
- Kolaport 20.700 krónur
- Ráðhús 20.700 krónur
- Stjörnuport 11.400 krónur
- Traðarkot 15.500 krónur
- Vesturgata 19.500 krónur
- Vitatorg 9.800 krónur
Rafhleðslustæði
Má ég leggja rafbíl í rafhleðslustæði þótt ég þurfi ekki að hlaða?
Nei. Rafhleðslustæði eru stæði fyrir bifreiðar til rafhleðslu, það er eingöngu er heimilt að leggja í þessum stæðum á meðan hleðsla fer fram. Þegar slík stæði eru á gjaldskyldu svæði og eru merkt með réttu umferðarmerki, þarf ekki að greiða bæði fyrir stæðið og rafhleðsluna heldur bara fyrir hleðslu.
Hleðslustaur í rafhleðslustæði er bilaður má ég þá leggja?
Nei. Bilaður hleðslustaur gefur ekki sjálfkrafa leyfi til að leggja í stæðið.