Íbúakort

Íbúakort er bílastæðakort fyrir fólk sem á heima á íbúakortasvæðum. Með íbúakorti er hægt að leggja bílnum án endurgjalds í gjaldskyld stæði innan gildissvæðis kortsins. 

Á þessari síðu eru upplýsingar um skilyrði og reglur fyrir íbúakorti. 

Þú finnur líka upplýsingar um rekstraraðilakort neðst á þessari síðu.

Hér er hægt að sækja um, breyta eða segja upp íbúakorti og nálgast eyðublað fyrir samþykki íbúðareiganda fyrir nýtingu íbúakortaréttar.

Skilyrði fyrir íbúakorti

  • Þú átt lögheimili á skilgreindu íbúakortasvæði og húsnæðinu fylgir ekki afnot að bílastæði á lóð í séreign eða sameign með öðrum.
  • Þú ert skráður eigandi íbúðarinnar eða ert með undirritað samþykki íbúðareiganda til að skila með umsókninni.
  • Þú ert skráður eigandi eða umráðamaður bílsins í ökutækjaskrá.
  • Þú ert ekki í skuld við Bílastæðasjóð sem er komin til milliinnheimtu eða löginnheimtu og hefur greitt öll íbúakort frá fyrri tímabilum.
  • Sækja um íbúakort

Íbúakort 2

Er annað íbúakort fyrir einstaklinga sem þurfa auka bílastæði. Annað hvort vegna þess að heimilinu fylgir fleiri en einn bíll eða vegna þess að húsnæðinu fylgir aðeins eitt stæði fyrir öll sem oft er upptekið. 

Helstu skilyrði fyrir íbúakorti 2

  • Húsnæðinu fylgir aðgengi að einu stæði á lóð annað hvort í séreign eða sameign með öðrum. Þá er ekki leyfilegt að vera með íbúakort 1 en hægt að sækja um íbúakort 2 í staðinn.

    Ef stæðin við húsnæðið eru fleiri en eitt þá er ekki leyfilegt að vera með íbúakort 2.

  • Eða ef húsnæðinu fylgir ekki aðgengi að bílastæði en þegar er í gildi íbúakort 1 á sömu kennitölu eða sama húsnæði.

    Auk þess þarf að uppfylla sömu skilyrði og fyrir íbúakort 1 sem eru hér að ofan.

    Ef umsækjandi er ekki skráður eigandi íbúðarinnar þarf að skila inn undirrituðu samþykki frá eiganda. 

    Fylla þarf út pdf eyðublað og skila með umsókninni. 

    Reglur um íbúakort

    Íbúakort og íbúakort 2 veita heimild til að leggja bílum án endurgjalds í gjaldskylda stöðureiti innan gildissvæðis íbúakorts, með einhverjum takmörkum.

Hvað kostar íbúakort?

  • 1.500 krónur á mánuði fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni eða vetni.
  • 3.000 krónur á mánuði fyrir aðrar bifreiðar.

Íbúakort 2

  • 20.000 krónur á mánuði

Endurnýja íbúakort

Gildistími er oftast eitt ár en aldrei lengur en gildistími samþykkis íbúðareiganda. 

Íbúakort eru ekki í áskrift. Sækja þarf um nýtt íbúakort þegar það eldra fer að renna út. 

Endurnýjun er ný umsókn því íbúakort eru ekki í áskrift.

Breyta bílnúmeri

Ef þú varst að fá þér nýjan bíl þarftu að breyta bílnúmerinu á íbúakortinu. 

  • Íbúakorthafi þarf að vera orðinn skráður eigandi eða umráðamaður bílsins eða ökutækis samkvæmt skráningu í ökutækjaskrá Samgöngustofu.

Ef um er að ræða tímabundna breytingu vegna viðgerðar eða tjóns á eigin bifreið í allt að 8 vikur eru ekki gerðar sömu kröfur um skráningu íbúakorthafa í ökutækjaskrá en þá þarf að taka fram tímalengd.

Þú fyllir út form og sendir inn.

Breyta íbúakortasvæði

Ef þú býrð á mörkum tveggja íbúakortasvæða getur þú óskað eftir því að breyta íbúakortasvæði þínu yfir á nærliggjandi svæði. Þú fyllir út form og sendir inn.

Breyta lögheimili

Ef þú hefur flutt lögheimili þitt í aðra eign á íbúakortasvæði getur þú óskað eftir færslu íbúakorts á þá eign. Ef þú ert ekki skráður eigandi eignarinnar í fasteignaskrá þarf undirritað samþykki íbúðareiganda að fylgja í viðhengi.

Íbúakortasvæði bílastæða

Rekstraraðilakort

Kortið veitir heimild til að leggja án endurgjalds í gjaldskyld bílastæði.

 


 

Teikning af tveimur konum að bera saman bækur sínar.