Leggja bílnum í gjaldskyld stæði

Upplýsingar um gjaldsvæði borgarinnar verð, greiðsluleiðir, bílastæði fyrir hreyfihamlaða, gjaldsvæðismerkingar og bílahús.

Hér er hægt að greiða fyrir gjaldskyld bílastæði í borgarlandi með netgreiðslu og skrá P-kort í stæði. 

Hvað kostar að leggja bílnum?

Í Reykjavík eru fjögur mismunandi gjaldsvæði og verðlagning og gjaldskyldutími mismunandi. Svæðin eru P1, P2, P3 og P4. 

Fjögur mismunandi gjaldsvæði

P1 

  • 660 krónur á klukkustund.
  • Kl. 9–20 virka daga og kl. 10–20 laugardaga og sunnudaga
  • Hámarkstími er 3 klst.

P2

  • 240 krónur á klukkustund.
  • Kl. 9–20 virka daga og kl. 10–20 laugardaga og sunnudaga

P3

  • 240 krónur á klukkustund fyrstu tvær klukkustundirnar. Eftir það 70 krónur
  • Kl. 9–18 virka daga 

P4

  • 240 krónur á klukkustund
  • Kl. 8–16 virka daga

Fólk með stæðiskort hreyfihamlaðra (P-kort) greiðir ekki fyrir gjaldskyld bílastæði. 

Ekki þarf að greiða fyrir stæði í merktu rafhleðslustæði ef bíll er í hleðslu. 

Ekki er gjaldskylda á eftirfarandi dögum: 

Nýársdagur, skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, annar í páskum, sumardagurinn fyrsti, 1. maí, uppstigningardagur, hvítasunnudagur, annar í hvítasunnu, 17. júní, frídagur verslunarmanna, jóladagur, annar í jólum.

Bílastæðakort fyrir deilibílaleigur

Reglurnar gilda fyrir deilibílaleigur sem starfrækja einnar ferðar deilibíla. 

Bílastæðakort fyrir rekstraraðila

Bílastæðakort fyrir rekstraraðila er fyrir aðila sem stunda rekstur skv. atvinnugreinaflokkun ÍSAT nr 47 eða 56 að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Greiðsluleiðir

Þegar verið er að leggja er hægt að greiða fyrir stæðið með því að:

  • Borga í stöðumæli með mynt, korti eða síma.
  • Borga með rafrænum greiðsluleiðum (öppum) í síma.
  • Borga með netgreiðslu í gegnum vefsíðu Bílastæðasjóðs.

Greiðsluöpp

Bílastæðasjóður hvetur viðskiptavini að kynna sér vel notkunarskilmála greiðsluappa við upphaf notkunar. Þú getur sótt greiðsluöppin gjaldfrjálst í App Store eða Google Play.

EasyPark

Þú getur notað þjónustuna á öllum gjaldskyldum svæðum á vegum Reykjavíkurborgar með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt. 

EasyPark virkar einnig í bílahúsum Reykjavíkur.

Parka

Þú getur notað þjónustuna á öllum gjaldskyldum svæðum á vegum Reykjavíkurborgar með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt. 

Parka virkar einnig í bílahúsum Reykjavíkur.

SíminnPay

Þú getur notað þjónustuna á öllum gjaldskyldum svæðum á vegum Reykjavíkurborgar með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt.

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða

Fólk með skerta hreyfigetu getur átt rétt á stæðiskorti, (P-korti), til þess að leggja í sérmerkt stæði.

Hreyfihamlaðir einstaklingar sem eiga erfitt með að komast til og frá almennu bílastæði geta átt rétt á sérmerktu bílastæði við heimili sitt. Slík bílastæði eru sett upp við lögheimili einstaklinga og aðeins á landi í eigu Reykjavíkurborgar. 

Sérmerkt stæði, sem stundum eru kölluð P-stæði, eru ekki það sama og P-merki, stæðiskort fyrir hreyfihamlað fólk, sem þú sækir um hjá sýslumönnum. Sótt er um stæðiskort hreyfihamlaða á island.is. Byrjað er á að útvega læknisvottorð sem læknir skilar inn rafrænt til sýslumanns. Síðan er valið hvort sækja eigi kortið á valda skrifstofu sýslumanns eða fá það sent heim.

Athugið að læknisvottorð þarf að liggja fyrir áður en umsókn er send inn.

P-kort hreyfihamlaðra í bílahúsum

Fólk með P-kort getur skráð bílinn sinn til lengri tíma í bílahús Reykjavíkur. Ef bíllinn er skráður og hlið opnast þá er óþarfi að hringja inn í hvert skipti.

Sérmerkt stæði

Sérmerkt stæði, sem stundum eru kölluð P-stæði gefur fólki með hreyfihömlun leyfi fyrir sérmerktu stæði við húsið sitt í Reykjavík. 

P-kort

P-kort gefur fólki með hreyfihömlun leyfi til að leggja í öll sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða til dæmis fyrir utan verslanir og stofnanir.

Sótt er um P-kort (stæðiskort fyrir hreyfihamlaða) á island.is. Byrjað er á að útvega læknisvottorð sem læknir skilar inn rafrænt til sýslumanns. Síðan er valið hvort sækja eigi kortið á valda skrifstofu sýslumanns eða fá það sent heim.

Bílahús

Reykjavíkurborg rekur sjö bílahús í og við miðborgina. Bílahúsin eru opin alla daga klukkan 7-24, fyrir utan Bergstaði sem er opið allan sólarhringinn. Í bílahúsunum er hægt að leggja til skemmri tíma eða sækja um langtímastæði.

Gjaldskrá bílahúsa

Skammtímastæði Stjörnuporti og Vitatorgi

  • 190 krónur fyrsta klukkustund
  • 140 krónur hver klukkustund eftir það

Gjald allan sólarhringinn

Skammtímastæði Kolaport, Ráðhúsi, Traðarkoti og Vesturgötu

  • 280 krónur fyrsta klukkustund
  • 150 krónur hver klukkustund eftir það

Gjald allan sólarhringinn

Skammtímastæði Bergstaðir

Miðhæð Bergstaða er opið almenningi sem gjaldskyldusvæði P1.

P1 

  • 660 krónur á klukkustund.
  • Kl. 9–20 virka daga og kl. 10–20 laugardaga og sunnudaga
  • Hámarkstími er 3 klst.

Langtímstæði (áskrift - mánaðargjald)

  • Bergstaðir efri hæð 13.500 krónur
  • Bergstaðir neðri hæð 20.700 krónur
  • Kolaport 20.700 krónur
  • Ráðhús 20.700 krónur
  • Stjörnuport 11.400 krónur
  • Traðarkot 15.500 krónur
  • Vesturgata 19.500 krónur
  • Vitatorg 9.800 krónur

Rafhleðslustæði

Má ég leggja rafbíl í rafhleðslustæði þótt ég þurfi ekki að hlaða?

Nei. Rafhleðslustæði eru stæði fyrir bifreiðar til rafhleðslu, það er eingöngu er heimilt að leggja í þessum stæðum á meðan hleðsla fer fram. Þegar slík stæði eru á gjaldskyldu svæði og eru merkt með réttu umferðarmerki, þarf ekki að greiða bæði fyrir stæðið og rafhleðsluna heldur bara fyrir hleðslu.

Hleðslustaur í rafhleðslustæði er bilaður má ég þá leggja?

Nei. Bilaður hleðslustaur gefur ekki sjálfkrafa leyfi til að leggja í stæðið.