Strandblak við Laugardalslaug
Strandblak er skemmtileg og kraftmikil hreyfing sem hentar öllum aldri. Við Laugardalslaug eru tveir strandblaksvellir sem eru opnir almenningi. Bókaðu völl, greiddu aðgang í laugina og skelltu þér í sandinn!
Um völlinn
Við Laugardalslaug eru tveir strandblaksvellir sem henta bæði fyrir léttan leik og æfingar með félögum.
Til að nota völlinn þarf að bóka tíma og greiða aðgang í afgreiðslu, líkt og þegar farið er í sund. Völlurinn er opinn á sama tíma og sundlaugin.
Bóka má í allt að tvær klukkustundir í einu. Ef þú nýtir ekki tímann er gott að afbóka svo aðrir geti spilað. Þú kemur með eigin bolta.
Skór eru ekki leyfðir á sundsvæðinu en í afgreiðslu má fá bláar plasthlífar ef þörf er á.
Eftir leik er gott að skafa sandinn til og skola fætur í vatnshana við laugarbakkann áður en farið er í sturtu.
Bókanir, afbókanir, verð og fleira...
Hvernig bóka ég völl?
- Veldu Árbæjarlaug, Laugardalslaug eða Gufunesbæ.
- Veldu hversu lengi þú ætlar að spila.
- Veldu dagsetningu og tíma dags.
- Skráðu nafn, netfang og símanúmer.
- Veldu Bóka.
- Þú færð sendan staðfestingarpóst á uppgefið netfang.
Hvernig breyti ég eða afbóka völl?
- Opnaðu staðfestingarpóstinn sem þú fékkst sendan á uppgefið netfang.
- Veldu Breyta tíma
- Nú ætti bókunin þín að opnast.
- Veldu Breyta tímasetningu til að velja nýjan tíma. Til að afbóka völlinn skaltu velja Hætta við bókun.
Verð og aðgangur
- Í Árbæjarlaug og Laugardalslaug þarf að greiða fyrir aðgang að velli í sundafgreiðslu.
- Gjaldskrá sundlauganna gildir líka fyrir strandblak. Þú getur til dæmis notað sundkortið þitt til að fá aðgang að strandblaksvelli.
Get ég spilað án þess að bóka?
Já, ef völlurinn er laus. Við mælum samt alltaf með að bóka og greiða aðgang fyrst. Það hjálpar okkur að halda utan um notkunina.
Er eitthvað sem má betur fara?
Er netið í ólagi eða sköfur brotnar? Sendu okkur ábendingu um það sem betur má fara og við skoðum málið.
Getum við aðstoðað?
Þarftu frekari aðstoð eða fannstu ekki það sem þú varst að leita að?
Þjónustuver borgarinnar getur aðstoðað þig í síma 411 1111, á netspjalli og í gegnum netfangið upplysingar@reykjavik.is.