Kennsluhættir í Víkurskóla

Víkurskóli er nýsköpunarskóli og er lögð áhersla á skapandi hugsun og hönnunarhugsun, nemendalýðræði, teymiskennslu og samþættingu námsgreina. Í öllum árgöngum eru kenndar svokallaðar uglur sem er samþætting námsgreina og eru verkefni unnin  þematengt ýmist sem hópa- eða einstaklingsverkefni.  Allt námsefni og fyrirmæli eru birt nemendum í google classroom.

 

List- og verkgreinar eru kenndar í lotum upp alla skólagönguna þar eru fög eins og textíll, myndlist, margmiðlun, leiklist, smíði og heimilisfræði og boðið er upp á fjölbreyttar valgreinar. Einnig er heimspeki, slökun, heilsufræði, hinsegin fræðsla, læsi, skapandi skrif, kynfræðsla og kynjafræði kennd í stuttum lotum.

 

Ein af sérstöðum Víkurskóla eru uglurnar, þar sem kennsla er samþætt annars vegar í íslensku, náttúrufræði, samfélagsfræði og upplýsinga- og tæknimennt og hins vegar í ensku, íslensku, samfélagsfræði og upplýsinga- og tæknimennt. Uglur eru skipulagðar af ugluteymum þar sem sjónum er beint að styrkleikum hvers og eins kennara. Lögð er mikil áhersla á fjölbreytt verkefni og þau samtvinnuð og metin út frá hæfniviðmiðum allra námsgreinanna. Samvinna nemenda er mikil og er aðferðum leiðsagnarnáms beitt í uglum líkt og í öðrum fögum í Víkurskóla. Lögð er áhersla á skapandi skil og nemendum skapaðar þær aðstæður að þeir geti nýtt sér tæki og tól skólans til þess. Nemandinn er hvattur til þess að hafa áhrif á námið og axla ábyrgð á eigin námi. Uglur eru í stöðugri þróun og eru nú kenndar í öllum árgöngum. Í 8. og 10. bekk eru sex klukkustundir á viku í uglu en í 9. bekk sjö klukkustundir á viku. Allur árgangurinn er á sama tíma í uglu og er nemendum skipt upp í mismunandi hópa allt eftir viðfangsefni hverju sinni. Ein ugla getur spannað 2-4 vikur, allt eftir umfangi.

 

  • Skólinn er einn af þekkingarskólunum í Leiðsagnarnámi og starfsmenn hafa kosið Uppeldi til ábyrgðar til stuðnings í agamálum.
  • Víkurskóli er þátttakandi í þremur Erasmus+ verkefnum og á þessum fyrstu starfsárum skólans hafa verið farnar margar ferðir bæði með og án nemenda.
  • Víkurskóli hefur fengið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar sem við erum afar stolt af.
  • Við erum í ferli um að vera réttindaskóla UNICEF í samvinnu við félagsmiðstöðina.
  • Í Víkurskóla er lögð rík áhersla á gott foreldrasamstarf t.d. með opnum húsum tvisvar á ári