Jafnréttisskólinn

Teikning af kennara fyrir framan töfluna í kennslustofu.

Jafnréttisskóli Reykjavíkur veitir fræðslu, ráðgjöf og stuðning varðandi jafnréttismenntun, mannréttindi og kynheilbrigði fyrir ungmenni, aðstandendur þeirra og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi borgarinnar.

Verkfærakista starfsfólks og foreldra

Í verkfærakistunni má finna ýmislegt gagnlegt efni til að styðja starfsfólk og foreldra í að undirbúa sig í fræðslu og stuðning eða samtöl við börn eða ungmenni.

Til að tryggja að kynfræðsla sé árangursrík og valdeflandi er nauðsynlegt að bæði starfsfólk og foreldrar taki virkan þátt í þeirri vinnu. 

Teikning af hjónum með ungling á milli sín.

Vika6

Vika6 er eitt þekktasta verkefni Jafnréttisskólans en átakið fer fram í sjöttu viku árs hvers. 

Í tilefni þess gefur Jafnréttisskólinn út ýmist efni tengt alhliða kynfræðslu fyrir leikskóla, yngsta stig, miðstig og unglingastig grunnskóla. Þema hvers árs er ákveðið af ungmennum borgarinnar. 

Starfsfólk leikskóla, grunnskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila er hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu sem miðar að aldri og þroska ungmennanna.

Ertu normal?

Ertu normal? er verkefni þar sem unglingar fá tækifæri til að velta fyrir sér ramma samfélagsins um hvað er talið eðlilegt og hvað ekki í formi myndbanda eða ljósmynda. 

Afrakstur verkefnisins er sýndur á Barnamenningarhátíð ár hvert.

Við hvetjum starfsfólk skóla til að taka þátt og leyfa sköpunargleði ungmenna að njóta sín.

Stefna Jafnréttisskólans

Samkvæmt íslenskum lögum, aðalnámskrá grunnskóla, menntastefnu Reykjavíkurborgar, samþykktum þingsályktunum og alþjóðlegum samningum eru íslensk stjórnvöld skuldbundin til að tryggja fræðslu um kynheilbrigði, mannréttindi og kynjajafnrétti í skólakerfinu. Allt efni Jafnréttisskólans miðar að því að framfylgja þeim ákvæðum og lögum. 

Jafnréttisskólinn byggir á þemum UNESCO um ahliða kynfræðslu sem má kynna sér hér að neðan. Þess bera að geta að listinn er ekki tæmandi og ekki allt í hverjum flokk á við allan aldur. Kynfræðsla miðar ávallt að aldri og þroska barna og ungmenna að hverju sinni. Hægt er að lesa meira um áherslur kynfræðslu í grunnskólum hér að neðan.

Teikning af tveimur konum, önnur þeirra situr í hjólastól og heldur á barni.

Verkefnastýrur Jafnréttisskólans

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

Á Youtube rás Jafnréttisskólans má finna ýmis myndbönd sem hægt er að nota í kennslu eða til eigin fróðleiks. Einnig erum við virk á Instagram og TikTok. 

Teikning af karli í jakkafötum með fána hinsegin fólks.