Jafnlaunamál
Þann 1. september 2026 tóku gildi breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 þannig skylda fyrirtækja og stofnana til að öðlast jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu var felld úr gildi.
Þess í stað hafa nú verið innleiddar kröfur um reglubundna skýrslugjöf til Jafnlaunastofu.
Launakerfi tryggi jöfn laun
Samkvæmt lögunum skulu atvinnurekendur nú á þriggja ára fresti skila gögnum sem sýna fram á að launakerfi þeirra tryggi jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf og að launaákvarðanir byggist á kynhlutlausum viðmiðum. Skýrslugjöfin felur meðal annars í sér starfaflokkun, launagreiningu og úrbótaáætlun ef þörf krefur.
Með skýrslugjöf um kynbundinn launamun er tryggt að laun séu ákveðin á kerfisbundinn hátt; með skýrum, hlutlægum og gagnsæjum viðmiðum, þannig að einstaklingar fái sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni. Skýrslugjöfin myndar þannig grunn að ákveðnu jafnlaunakerfi sem kemur í veg fyrir að hægt sé að mismuna fólki í launum.
Áhersla á jafnrétti
Í jafnlaunastefnu Reykjavíkurborgar kemur fram að allt starfsfólk Reykjavíkurborgar skuli njóta jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu og/eða jafnverðmæt störf.
Síðastliðin ár hefur verið unnið markvisst að því að eyða kynbundnum launamun á vettvangi borgarinnar. Leiðréttur launamunur kynjanna hjá Reykjavíkurborg mældist 0.0% í greiningu á kynbundnum launamun fyrir árið 2024.
Launagreiningar og þróun kynbundins launamunar
Launagreiningar eru framkvæmdar árlega til að mæla kynbundinn launamun. Á mynd hér fyrir neðan má sjá þróun kynbundins launamunar hjá Reykjavíkurborg eftir árum.
- Launagreining 2024
- Launagreining 2023
- Launagreining 2022
- Launagreining 2021
- Launagreining 2020
- Launagreining 2019
Samræmdar tölur um þróun kynbundins launamunar á heildarlaunum starfsfólks Reykjavíkurborgar árin 1995–2024.