Saman gegn ofbeldi
Saman gegn ofbeldi er samvinnuverkefni gegn heimilisofbeldi á höfuðborgarsvæðinu. Í því taka þátt Reykjavíkurborg, lögreglan, Kvennaathvarfið, heilsugæslan og sýslumaðurinn. Markmiðið er að tryggja öryggi á heimilum, bæta þjónustu við þolendur og gerendur og vernda börn.
Í neyð skal alltaf hringja í 112.
Fræðsla
Hægt er að óska eftir fræðslu um verkefnið Saman gegn ofbeldi. Fræðslan er sniðin að þörfum þeirra sem eftir henni óska. Fræðslan getur verið almenn eða með áherslu á birtingarmyndir ofbeldis í ákveðnum hópum.
Vinsamlegast hafið samband við Halldóru Dýrleifar Gunnarsdóttur vegna fræðslunnar.
- Netfang: halldora.gunnarsdottir@reykjavik.is
Hægt er að óska eftir fræðslu um aldraða og heimilisofbeldi.
Vinsamlegast hafið samband við Halldóru Dýrleifar Gunnarsdóttur vegna fræðslunnar.
- Netfang: halldora.gunnarsdottir@reykjavik.is
Vinnustaðir geta fengið fræðslu um hinsegin fólk og heimilisofbeldi.
Vinsamlegast hafið samband við Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur vegna fræðslunnar.
Úrræði fyrir brotaþola
Öll eiga rétt á aðstoð og ofbeldi er aldrei brotaþola að kenna.
Ýmis konar úrræði standa til boða ef þú býrð við ofbeldi eða hefur orðið fyrir ofbeldi, eða ef þú þekkir til einhvers sem er í þeim aðstæðum.
Þú getur alltaf hringt í 112, og þú getur líka fengið aðstoð hjá ýmsum grasrótarsamtökum eða félagsþjónustunni.
Tölfræði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborg taka saman tölulegar upplýsingar um útköll/tilkynningar vegna heimilisofbeldis í Reykjavík. Upplýsingarnar eru birtar mánaðarlega og ná frá árinu 2015 þegar verkefnið Saman gegn ofbeldi hófst.
Bæklingar
Hér er að finna safn af fræðsluefni um heimilisofbeldi fyrir gerendur, brotaþola og fagfólk.
Skýrslur
Á vegum verkefnisins Saman gegn ofbeldi hafa verið unnar ýmsar skýrslur, samantektir og tillögur. Hér er að finna yfirlit yfir verkefnið og skýrslur m.a. um fatlað fólk, innflytjendur, aldraða og hinsegin fólk, einnig úttekt RIKK á verkefninu.