Saman gegn ofbeldi - Skýrslur

Verkefnið Saman gegn ofbeldi hefur látið vinna ýmsar skýrslur og tillögur. Hér er að finna skýrslur og samantektir m.a. um fatlað fólk, innflytjendur, aldraða og hinsegin fólk. Einnig úttekt RIKK á verkefninu.

Skýrslur um aðgerðir gegn heimilisofbeldi

 

Ný samantekt frá árinu 2023 um verkefnið

Árið 2022 var staða heimilislauss fólks í heimilisofbeldismálum skoðuð. Skýrsla sem inniheldur upplýsingar um málaflokkinn og tillögur var birt árið 2023.  

Samantekt um upphaf verkefnisins, skipulag, gang þess, tölfræði og útgáfur.

Starfshópur vann jafnframt skýrslu með tillögum að aðgerðum til þess að sporna gegn heimilisofbeldi gagnvart öldruðum.

Árið 2017 var svo staða hinsegin fólks í heimilisofbeldismálum skoðuð ásamt leiðum til að sporna gegn þeim, en skýrsla um stöðuna inniheldur bæði upplýsingar um þennan málaflokk sem og tillögur og var birt árið 2018.

Í tengslum við fræðslur um hinsegin fólk og heimilisofbeldi voru útbúin nokkur skjöl sem er hægt að nálgast hér:

Einnig var staða innflytjenda í heimilisofbeldismálum skoðuð ásamt aðgerðum til að vinna gegn þeim.

Skoðað var sérstaklega hvaða aðgerðum ætti að beita til að vinna gegn ofbeldi gagnvart fötluðu fólki árið 2015.

Áfangamat og lokaskýrsla

RIKK, rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum, vann áfangamat á verkefninu í október 2015.

Úrræði fyrir brotaþola

Smelltu hér til að sjá úrræði sem standa til boða ef þú býrð við ofbeldi eða hefur orðið fyrir ofbeldi, eða ef þú þekkir til einhvers sem er í þeim aðstæðum.