Íbúafundur borgarstjóra – Árbær
Borgarstjóri býður til opins íbúafundar í Árbæjarskóla fimmtudaginn 3. mars kl. 20:00. Þar mun hann kynna það sem er efst á baugi í hverfinu.
Streymi
Streymt verður frá íbúafundinum á þessa vefsíðu og verður það aðgengilegt sem upptaka að loknum fundi. Mögulegt er að fundurinn verði eingöngu í streymi – ef reglur leyfa kynnum við staðsetningu.
Dagskrá fundarins
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: Árbær
- Þorgerður Sigurðardóttir íbúi í Árbæ fjallar um hverfið
Myndband - Birna Bragadóttir forstöðukona Elliðaárstöðvar fjallar um nýjan áfangastað í Elliðaárdal
Erindi Birnu - Spurningar og svör.
- Fundarstjóri er Þorkell Heiðarsson formaður íbúaráðs Árbæjar.
Hefur þú spurningu?
Sendu endilega spurningar sem þú hefur fyrir fundinn. Einnig er velkomið að bera fram spurningar á fundinum. Fylltu út formið hér að neðan eða sendu tölvupóst á netfangið: ibuafundir@reykjavik.is.