Þétt, fjölbreytt og grænt borgarhverfi

Borgarlínan Samgöngur

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ásamt sænska vinningsteyminu frá FOJAB arkitektum. Mynd/Róbert Reynisson
fólk á verðlaunaafhendingu

Keldnaland verður borgarhluti með alla kosti þéttrar og lifandi borgarbyggðar fyrir íbúa og gesti, samkvæmt vinningstillögu alþjóðlegrar samkeppni um þróun landsins, sem Reykjavíkurborg og Betri samgöngur stóðu fyrir. Verðlaunaafhending fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Að baki vinningstillögunni er sænska arkitektastofan FOJAB og var verkfræðistofan Ramboll í ráðgjafahlutverki. Í tillögunni er lögð áhersla á að einfalt sé fyrir íbúa að lifa sjálfbæru og heilbrigðu hversdagslífi vegna nálægðar við náttúruna, með grænum svæðum, hverfisgörðum og torgum.

„Skipulag nýs hverfi að Keldum markar ný og spennandi tímamót í þróun borgarinnar,“ segir  Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og formaður dómnefndar um þróun Keldnalands.

Keldur verða tímamótahverfi þar sem það gengur út frá tilkomu Borgarlínu og öflugum virkum ferðamátum frá fyrsta degi. Hverfið verður lifandi, spennandi og hlýlegt allt í senn.

„Keldur verða þétt, fjölbreytt og grænt borgarhverfi, sem nýtur góðs af nálægð við náttúruna og hágæða almenningssamgöngum, Borgarlínu. Keldur verða meðal annars tímamótahverfi þar sem það gengur út frá tilkomu Borgarlínu og öflugum virkum ferðamátum frá fyrsta degi. Hverfið verður lifandi, spennandi og hlýlegt allt í senn,“ segir hann.

Góður leiðarvísir fyrir þróunarvinnuna framundan

Tvær tillögur til viðbótar hlutu viðurkenningu. Verðlaunatillagan, auk þeirra tveggja sem hlutu viðurkenningu, móta grunn að góðri forsögn fyrir áframhaldandi vinnu við hönnun og þróun. Gert er ráð fyr­ir að lág­marki tíu þúsund manna byggð á svæðinu og að fimm þúsund manns starfi þar.

Til viðbótar við það markmið að á Keldnalandi rísi spennandi nútímahverfi er sá grunnur að það byggi á vistvænum samgöngum og stuðli að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi. Það markmið helst í hendur við að Borgarlínan mun liggja í gegnum hverfið og verður áhersla á þjónustu og atvinnustarfsemi í kringum stöðvar hennar. Stefnt er að því að þjónusta Borgarlínunnar hefjist samhliða afhendingu á fyrstu 100 íbúðunum. Áætlaður ferðatími með Borgarlínunni að Lækjartorgi er í kringum 20 mínútur.

Metnaðarfull markmið í borgarþróun

Í dómnefndaráliti segir að viðfangsefni samkeppninnar, eins og þau komu fram í keppnislýsingu, endurspegli metnaðarfull markmið í borgarþróun, sem ekki eigi sér fordæmi á Íslandi. „Hugsanlega verður litið á einhver þeirra með tortryggni, til dæmis þau sem snúa að kolefnishlutleysi og raunverulegri fjölbreytni í ferðamátum, í borg þar sem íbúar eru háðir einkabílnum og byggðin er fremur dreifð miðað við íbúafjölda. Eftir skoðun á tillögunum telur dómnefndin þó enn raunhæfara en áður að markmiðin náist og Keldnaland verði mikilvægt fordæmi við mótun annarra nýrra hverfa,“ segir í álitinu.

Markmiðið er lifandi borgarumhverfi

„Tillagan er byggð á reglubundinni notkun byggðarreita meðfram sannfærandi og raunhæfri leið fyrir Borgarlínu, með vel staðsettum stöðvum og hverfiskjörnum. Með þessu nýtist landið vel og dreifing þéttleikans er sveigjanleg en leiðir eru jafnframt greiðar gegnum byggðina,“ segir í dómnefndaráliti um vinningstillöguna en þar er einnig minnst á að í tillögunni sé sett fram ítarlegt og ígrundað net leiða fyrir alla ferðamáta, sem rími vel við blöndun byggðar og staðsetningu þjónustu.

Magdalena Hedman, arkitekt og verkefnisstjóri tillögunnar hjá FOJAB, segir að áhersla á kolefnishlutleysi setji mark sitt á skipulagsvinnuna og sömuleiðis að borgarhverfi sem þetta sé frekar óalgengt á Íslandi. „Arkitektúrinn í tillögu okkar miðast við mannlegan skala – þrjár til fimm hæðir – en er á sama tíma nógu þéttur og vel tengdur til að skapa lifandi borgarumhverfi,“ segir hún.

Heildarstigafjöldi réði úrslitum

Samkeppnin, sem fór af stað í janúar á þessu ári, fór fram í tveimur þrepum. Alls bárust 36 tillögur og voru fimm valdar til frekari vinnslu. Samkeppnin var nafnlaus á báðum þrepum og var dómnefnd ókunnugt um hvaða teymi stóðu að hverri tillögu við mat og stigagjöf tillagnanna. Heildarstigafjöldi, sem byggði á mati á 14 viðfangsefnum, réði úrslitum. Greidd var 50.000 evru þóknun fyrir vinnu hvers teymis á öðru þrepi og til viðbótar fær verðlaunatillagan aðrar 50.000 evrur.

Tillögurnar fimm eru verðlaunatillagan Crafting Keldur, sem hlaut 536 stig, Connect Fast + Live Slow (420 stig – viðurkenning), Urban Life Meets Keldur Park (396 stig– viðurkenning), The Green River (314 stig) og Keldur - weaving natural and urban fabrics (311 stig).

Framundan er hönnunar- og skipulagsvinna

Mikilvægt er að hafa í huga að þróunarvinna og skipulagsgerð er á frumstigi þó samkeppni sé lokið og að nú liggi fyrir góð forsögn fyrir áframhaldandi vinnu. Nálgunin í tillögunum og myndefni í þeim þarfnast töluverðrar úrvinnslu og mun breytast í áframhaldandi skipulagningu og hönnun, áður en skipulagsáætlanir verða staðfestar og framkvæmdir geta hafist. Skipulagningu og uppbyggingu verður skipt í minni áfanga og ljóst að svo stór og fjölmenn byggð rísi ekki á skömmum tíma.

Reykjavíkurborg og Betri samgöngur eru að hefja næsta áfanga við þróun svæðisins. Nú hefst formleg tillögugerð í samráði við hagsmunaaðila, íbúa og ráðgjafa við frekari þróun fyrirliggjandi hugmynda, vinnslu rammahluta aðalskipulags Reykjavíkur fyrir svæðið og mótun deiliskipulags fyrir fyrstu hluta uppbyggingarinnar.

Sýning á tillögunum fimm stendur yfir í Tjarnarsal Ráðhússins en henni lýkur 2. október. Öll velkomin.