Opið hús um skipulag Keldnalands
Verið velkomin á opið hús að Keldum og í skipulagða gönguferð um svæðið. Opið hús vegna kynningar á vinnslutillögu rammahluta aðalskipulags Keldna og nágrennis verður í bókasafninu á tilraunastofunni að Keldum, Keldnavegi 3, í næstu viku.
Opna húsið verður á eftirfarandi dögum:
- Þriðjudaginn 26. ágúst milli klukkan 15 og 18.30.
- Miðvikudag 27. ágúst milli klukkan 15 og 18.30
- Skipulögð ganga um svæðið hefst klukkan 17.30 báða dagana.
Boðið verður uppá göngu um græn svæði í jaðri uppbyggingarsvæðisins undir leiðsögn Þórólfs Jónssonar, deildarstjóra náttúru og garða hjá Reykjavíkurborg.
Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geta kynnt sér vinnslutillögu ásamt þróunaráætlun Keldnalands og öðrum fylgigögnum. Starfsfólk og ráðgjafar verða á staðnum til að svara spurningum.
Til þess að auðvelda fólki að kynna sér málið er búið að gera tvö myndbönd sem kynna tillöguna og segja frá heildarhugmyndinni um hverfið sjálft.
Keldnaland er byggt upp í samvinnu Reykjavíkurborgar og Betri samgangna.
Keldnaland verður þétt, fjölbreytt og grænt borgarhverfi sem nýtur góðs af nálægð við náttúruna, góðum almenningssamgöngum og áherslu á fjölbreytta ferðamáta. Borgarlínan mun fara um svæðið sem þýðir fleiri valkosti fyrir íbúa með auknum lífsgæðum og góðri þjónustu. Íbúar eiga að geta lifað sjálfbæru og heilbrigðu hversdagslífi með grænum svæðum, hverfisgörðum og torgum en markmiðið er lifandi borgarumhverfi.
Skipulagstillagan og fylgigögn eru aðgengileg á skipulagsgáttinni þar sem áhugasöm geta sent inn athugasemdir og ábendingar til 10. september 2025.
- Skoða í skipulagsgáttinni
- Viðburður á Facebook: Opið hús að Keldum #1
- Viðburður á Facebook: Opið hús að Keldum #2
- Upplýsingasíða um Keldnaland