Framkvæmdir í Naustum að hefjast
Framkvæmdir hefjast í Naustum eftir helgi þar sem bæði verður ráðist í endurnýjun lagna og gerð nýs, fallegs yfirborðs sem mun breyta ásýnd götunnar. Gatan, sem tengir Hafnarstræti og Tryggvagötu, verður uppfærð í vistgötu í samræmi við samþykkt umferðarskipulag Kvosarinnar. Með endurhönnuninni er ekki aðeins unnið að nauðsynlegri lagnavinnu heldur einnig að því að efla mannlíf og skapa líflegra og aðgengilegra göturými. Reykjavíkurborg og Veitur standa sameiginlega að framkvæmdunum.
Nýtt útlit innblásið af íslensku prjónamynstri
Yfirborð Naustanna fær nýtt og skemmtilegt mynstur sem minnir á klassískt íslenskt prjón, lagt yfir götuna eins og löber á veisluborð. Lögð er áhersla á gott aðgengi fyrir öll, og verður ljóst og slétt yfirborðið til þess fallið að létta ásýnd götunnar.
Í götunni verða einnig gróðurbeð með trjám og fjölbreyttum gróðri, auk lítils sviðs sem nýtist bæði sem bekkur og sem vettvangur fyrir viðburði á hátíðisdögum. Allt göturýmið verður upphitað með snjóbræðslu.
Endurnýjun nauðsynlegra innviða
Veitulagnir verða endurnýjaðar og tvöfalt kerfi fráveitu sett í götuna, en slíkt hjálpar mjög til við að losa ofanvatn af svæðinu í mikilli úrkomu. Lagnir eru frá 1915 og 1925 og tímabært að endurnýja þær.
Hönnun og lýsing
Landmótun sá um hönnun hins nýja göturýmis. Lota annaðist lýsingarhönnun þar sem ljósastaurar minna á möstur skipa og kastarar varpa sérstakri lýsingu á sviðið þegar þar fara fram viðburðir. Lýsingin dregur jafnframt fram ljósa yfirborðið og eykur öryggi vegfarenda. VBV sá um verkfræðihönnun og Efla um gerð myndefnis.
Framkvæmdatími og aðgengi
Áhersla er lögð á góð samskipti við hagaðila á meðan á framkvæmdum stendur og hefur þegar verið haldinn kynningarfundur. Gatan verður lokuð bílaumferð á framkvæmdatíma en aðgengi gangandi vegfarenda verður tryggt allan tímann. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í desember.