Naustin (Tryggvagata-Hafnarstræti) - Gatnagerð og lagnir

Verkið felst í endurgerð götu og uppfærslu veitna í Naustunum milli Tryggvagötu og Hafnarstrætis. Gatan verður vistgata til að byrja með og seinna meir göngugata.
Verkkaupar eru Reykjavíkurborg og Veitur.
Áætlaður framkvæmdatími: apríl 2026 - desember 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Jarðvinna:
Jarðvegsskipta á í götunni og því töluverður uppgröftur sem leiðir til þess að lokað verður á umferð bíla um götuna á framkvæmdatíma. Ekki er reiknað með að fleygun klappar verði umfangsmikil. Aðgengi gangandi að lóðum og inngöngum verður tryggt allan verktímann.

Veitur:
Gatan verður upphituð og snjóbræðsla lögð í allt göturýmið. Borgarlýsing verður uppfærð; nýir götuljósastrengir, stólpar og lampar. Lögð verður tvöföld fráveita sem tengd verður núverandi fráveitukerfi í Tryggvagötu og Hafnarstræti. Lagðar verða nýjar kaldavatnslagnir og hitaveitulagnir.

Yfirborðsfrágangur:
Nýtt yfirborð götu verður hellulagt ásamt gróðurbeðum og setbekkjum.

 

Hver koma að verkinu?

Verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar

Emilía Maí Gunnarsdóttir

Verkefnisstjóri Veitna

Guðmundur Freyr Arnarson

Verkhönnun

Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar ehf.

Landslagsarkitekt

Landmótun sf
Síðast uppfært 03.03.2026