Fyrsta stefnan um gönguvæna borg
Reykjavíkurborg hefur lagt fram fyrstu heildstæðu stefnu sína um gönguvæna borg, Gönguvæn Reykjavík 2036, ásamt aðgerðaáætlun til ársins 2031. Með stefnunni stígur Reykjavík mikilvægt skref í átt að mannvænni, öruggari og sjálfbærari borg fyrir alla íbúa.
Stefnan markar tímamót í uppbyggingu borgarinnar og setur gangandi vegfarendur í skýran forgang. Í inngangi stefnunnar segir að markmiðið sé „að ferðast fótgangandi á að vera öruggur, aðgengilegur og eftirsóknarverður valkostur fyrir öll, óháð aldri, getu eða búsetu“.
Fleiri vilja ganga
Ferðavenjukannanir sýna að áhugi borgarbúa á því að ganga er mun meiri en raunveruleg notkun endurspeglar í dag. Um 25% segjast vilja ganga til vinnu, en aðeins 13% gera það í reynd. Þetta bendir til þess að með bættum aðstæðum, skýrari tengingum og öruggari gönguleiðum sé hægt að virkja óuppfylltan vilja til göngu og gera hana að raunhæfum valkosti fyrir mun fleiri íbúa.
„Í Reykjavík er hlutfall bílanotkunar mjög hátt í samanburði við aðrar evrópskar höfuðborgir á meðan hlutfall gangandi er lægra en víða annars staðar. Þetta endurspeglar sögulega þróun byggðar og skipulag samgangna í borginni. Með markvissum breytingum á borgarumhverfi er þó unnt að snúa þessari þróun við,“ segir í stefnunni.
Í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 er markmiðið að hlutfall gangandi í öllum ferðum verði að lágmarki 22% árið 2030 og að virkir ferðamátar verði orðnir yfir 50% ferða árið 2040. Stefna um gönguvæna borg 2036 er mikilvægur hluti af þeirri vegferð.
Virkni, öryggi og upplifun
Stefna um gönguvæna Reykjavík byggir á þremur samverkandi áherslum sem saman mynda heildstæða sýn um borg þar sem gangandi vegfarendur njóta forgangs.
Fyrsta stoðin snýr að virkni og tengingum. Lögð er áhersla á að byggja upp samfellt, skilvirkt og vel skilgreint net gönguleiða sem tengir saman heimili, skóla, vinnustaði, þjónustu og almenningssamgöngur. Með styttri vegalengdum og betri tengingum skapast raunhæfar forsendur fyrir því að fleiri geti valið að ganga í daglegum erindum sínum.
Önnur stoðin er öryggi og aðgengi. Markmiðið er að skapa umhverfi þar sem allir geta gengið um borgina á öruggan og aðgengilegan hátt, óháð aldri eða færni. Sérstök áhersla er lögð á börn, eldri borgara og aðra viðkvæma hópa. Með bættri lýsingu, öruggari gönguþverunum og skýrari hönnunarviðmiðum verður auðveldara fyrir alla að treysta sér til að ferðast fótgangandi.
Þriðja stoðin fjallar um upplifun og gæði borgarrýmis. Ganga á ekki aðeins að vera hagkvæmur ferðamáti heldur einnig ánægjuleg og vistleg upplifun. Með áherslu á gróður, skjól, dvalarrými og mannvæna hönnun verður borgarumhverfið bæði fallegra og aðlaðandi, sem styrkir tilfinningu íbúa fyrir samfélagi og nærumhverfi.
Aðgerðaáætlun til 2031
Aðgerðaáætlunin felur í sér fjölbreytt verkefni sem miða að því að bæta göngutengingar, öryggi og upplifun gangandi vegfarenda. Þar má nefna:
- Samstarf við skóla um að fjölga gönguferðum barna til og frá skóla.
- Greiningar á gönguleiðum við strætóstöðvar og fyrirhugaðar Borgarlínustöðvar.
- Bætt lýsing á fjölförnum stígum og öruggari gönguþverunum, sérstaklega í grennd við skóla.
- Lækkaðan aksturshraða í íbúagötum og úrbætur á hönnun gatnamóta.
- Aukna vetrarþjónustu og skýrara skipulag snjósöfnunarsvæða.
Ráðgjöf frá alþjóðlegum samtökum
Stefnan var unnin af stýrihóp sem hóf störf í september 2025 og fékk meðal annars ráðgjöf frá alþjóðlegu samtökunum Walk21, sem sérhæfa sig í stefnumörkun um gönguvænar borgir. Drög að stefnunni voru kynnt í samráðsgátt borgarinnar í apríl 2026 og bárust sex umsagnir.
Skýr framtíðarsýn
Stefna um gönguvæna Reykjavík setur fram skýra framtíðarsýn um borg þar sem auðvelt og öruggt er að ferðast fótgangandi. Með markvissum aðgerðum og samstilltu átaki verður unnið að því að skapa aðgengilegt og mannvænt borgarumhverfi sem þjónar þörfum íbúa á öllum aldri. Í stefnunni er lögð áhersla á að vandað og aðgengilegt net gönguleiða styrki borgina, ásýnd hennar og aðgengi og að bættar aðstæður geti aukið bæði öryggi og lífsgæði.