Gönguvæn borg í samráðsgátt
Drög að stefnu og aðgerðaráætlun um gönguvæna borg eru komin í samráðsgátt Reykjavíkurborgar. Borgarstjórn vísaði tillögunum í gáttina til að íbúar Reykjavíkur og aðrir hagaðilar geti kynnt sér stefnuna og komið með athugasemdir.
Fyrsta stefna Reykjavíkur um gönguvæna borg markar skýra framtíðarsýn um borg þar sem gangandi vegfarendur eru í forgangi í daglegum samgöngum. Markmiðið er að skapa borgarumhverfi þar sem það að ferðast fótgangandi er öruggur, aðgengilegur og eftirsóknarverður valkostur fyrir öll, óháð aldri, getu eða búsetu.
Hægt er að senda inn ábendingar til 27. apríl næstkomandi. Til að einfalda úrvinnslu er óskað eftir því að við skil á ábendingum sem varða einstakar greinar sé vísað í viðkomandi kafla í drögum að stefnunni og gerð sé, í þeim tilvikum sem það á við, tillaga að textaviðbótum eða breytingum.