Höfðabakki umferðarljós og úrbætur á gönguleiðum

Umferðarljós og gönguleiðir
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Hvað verður gert?

Framkvæmdin felur í sér endurnýjun umferðarljósa á 5 gatnamótum á Höfðabakka, við Stórhöfða, Dvergshöfða, Bíldshöfða, Vesturlandsveg og Bæjarháls.  
Einnig verða gerðar endurbætur m.t.t. umferðaröryggis á gatnamótunum. 
Við Stórhöfða, Dvergshöfða og Bíldshöfða verða gerðar endurbætur á umferðarljósum og á gönguleiðum, miðeyjur á Höfðabakka breikkaðar og götulýsing bætt.  
Á Höfðabakkabrú við Vesturlandsveg verða gerðar endurbætur á gönguleiðum og götulýsing bætt. Gálgastaurar umferðarljósa verða fjarlægðir og umferðarljósastaurar staðsettir á nýjum stöðum. Austan megin á Höfðabakka eru vinstribeygjureinar aðskildar frá akreinum til norðurs með eyju.  
Við Bæjarháls verða gerðar endurbætur á umferðarljósum og á gönguleiðum, miðeyjur á Höfðabakka breikkaðar,  hægribeygjuframhjáhlaup fjarlægð og götulýsing bætt.  
Á hægribeygjuframhjáhlaup sem ekki verða með umferðarljósum verða settar malbikaðar upphækkanir. 

Gert er ráð fyrir að unnið sé við ein gatnamót í einu þó að möguleiki sé á að skörun verði á milli gatnamóta með einhverja verkhluta.

Hvernig gengur?

Júní 2025

Verk er hafið og unnið er í framkvæmdum við Bæjarháls í fyrsta áfanga. Gert er ráð fyrir í verkáætlun að byrjað sé á syðstu gatnamótunum í 1. áfanga verksins og svo hver gatnamót unnin koll af kolli til norðurs. Leitast verður við að skörun á vinnu milli gatnamóta verði takmörkuð eins og hægt er til að lágmarka umferðartafir sem vissulega munu verða þegar farið er í vinnu við jafn fjölfarin gatnamót og um er að ræða í þessu verki.

September 2025

Bæjarháls:  Framkvæmdum að ljúka. Eftir er að setja upp 2 ljósastaura við göngustíg en vinna við gatnamót er að mestu búin, eftir er að mála akreinalínur en búið er að formerkja fyrir þeim

Höfðabakkabrú:  Í undirbúningi er að skipta út umferðarljósum og taka ný í notkun. Ekki er komin niður ákveðin dagsetning en gert er ráð fyrir að það verði í vikunni 22.09-26.09. Búið er að setja upp alla stólpa gera malbikaðar upphækkanir og breyta gönguleiðum ásamt því að setja upp nýja ljósastólpa við gönguleiðir. Í framhaldi af umferðarljósabreytingu verður farið í frágang á svæðinu.

Bíldshöfði:  Framkvæmdir ekki hafnar.

Dvergshöfði:  Vinna í gangi við að skipta út/setja upp nýja götulýsingu ásamt umferðarljósum, upprif og endurgerð á steyptum gangstéttum í gangi samhliða. Búið er að rífa upp við miðeyjar og steypa nýja kantsteina.

Stórhöfði:  Búið er að rífa upp eldri kanntsteina og steypa nýja. 

 

 

Hver koma að verkinu?

Eftirlit

Kristján Ingi Gunnlaugsson, VSÓ Ráðgjöf

Verkefnastjóri Reykjavíkurborgar

Gunnar Atli Hafsteinsson

Verktaki

Krafla ehf
Síðast uppfært 25.09.2025