Endurnýjun umferðarljósa á Höfðabakka
Vinna er í fullum gangi við endurnýjun umferðarljósa á Höfðabakka. Eldri umferðarljósabúnaður var kominn á tíma og því nauðsynlegt að skipta honum út. Framkvæmdir hafa verið unnar í áföngum í haust og hafa að mestu gengið vel.
Umferðaljósastillingar hafa verið virkjaðar á eftirfarandi gatnamótum:
- Höfðabakki/Bæjarháls
- Höfðabakki/Vesturlandsvegur
- Höfðabakki/Dvergshöfði
Stefnt er að þvi að framkvæmdum á Höfðabakka/Stórhöfða og Höfðabakka/Bíldshöfða ljúki fyrir áramót og að nýjar ljósastillingar verði þá orðnar virkar. Markmiðið er að ná sem bestu flæði á öllum gatnamótunum en með samstillingu geta ökumenn keyrt á jöfnum hraða í gegnum nokkur gatnamót án þess að lenda á rauðu ljósi.
Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar hafa í för með sér. Þökkum þolinmæðina!