Höfðabakki umferðarljós og úrbætur á gönguleiðum

Endurbætur á gönguleiðum og umferðarljósum, götulýsing og umferðaröryggi verður bætt.
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Hvað verður gert?

Framkvæmdin felur í sér endurnýjun umferðarljósa á 5 gatnamótum á Höfðabakka, við Stórhöfða, Dvergshöfða, Bíldshöfða, Vesturlandsveg og Bæjarháls.  
Einnig verða gerðar endurbætur m.t.t. umferðaröryggis á gatnamótunum. 

Við Stórhöfða, Dvergshöfða og Bíldshöfða verða gerðar endurbætur á umferðarljósum og á gönguleiðum, miðeyjur á Höfðabakka breikkaðar og götulýsing bætt.  

Á Höfðabakkabrú við Vesturlandsveg verða gerðar endurbætur á gönguleiðum og götulýsing bætt. Gálgastaurar umferðarljósa verða fjarlægðir og umferðarljósastaurar staðsettir á nýjum stöðum. Austan megin á Höfðabakka eru vinstribeygjureinar aðskildar frá akreinum til norðurs með eyju.  

Við Bæjarháls verða gerðar endurbætur á umferðarljósum og á gönguleiðum, miðeyjur á Höfðabakka breikkaðar,  hægribeygjuframhjáhlaup fjarlægð og götulýsing bætt. Á hægribeygjuframhjáhlaup sem ekki verða með umferðarljósum verða settar malbikaðar upphækkanir. 

Gert er ráð fyrir að unnið sé við ein gatnamót í einu þó að möguleiki sé á að skörun verði á milli gatnamóta með einhverja verkhluta.

Hvernig gengur?

Júní 2026

Búið er að setja upp alla ljósastaura í verkinu. Ídráttur ljósa- og umferðaljósastrengja er langt kominn og klárast seinni part mánaðar. Stefnt er á útskipti á umferðarljósum í vikunni 22.-26 jún. Búið að endursteypa stétt á NA horni gatnamóta. Að öðru leiti er unnið að yfirborðsfrágangi eins og hægt er fram að útskiptum ljósa. Undirbúningur fyrir lengingu á beygjuvasa inn að Dvergshöfða er í gangi.

Búið er að steypa stéttar á NA og NV horni gatnamóta við Bíldshöfða. Unnið er að yfirborðsfrágangi og undirbúningur fyrir lengingu á beygjuvasa inn að Dvergshöfða er í gangi.

Búið er að skipta út ljósabúnaði umferðarljósa við gatnamót Höfðabakka-Bíldshöfða og gekk það verk vel. Næsta verk er að fínstilla ljósastýringu á Höfðabakka í heild sinni.

Febrúar 2026

Bæjarháls – það sem er eftir:

  • Færa til einn ljósastaur, stígalýsing.
  • Loka hluta af sárum eftir færslu á staurum og útskipti á staur sem búið var að keyra á.

Höfðabakkabrú:

  • Leggja blindradoppur og leiðilínur í steypta gangstétt á brú.
  • Loka frágangur á yfirborði

Bíldshöfði

  • Framkvæmdir bíða þar til aðstæður leyfa vegna frosts.

Dvergshöfði

  • Lokið er við allar steyptar stéttar.
  • Ný umferðarljós komin upp og í virkni.
  • Búið að lagfæra legu á kantsteinum og steypa í sár í eyjum.
  • Eftir að klára hluta af götumerkingum.
  • Lokafrágangur á grassvæðum er eftir og klárast í vor.

Stórhöfði

  • Götumerking er eftir að hluta.
  • Uppsetning á hluta af skiltum er eftir.
  • Lokið er við uppsetningu á ljósastólpum og ný götuljós orðin virk.
  • Búið að helluleggja gönguleiðir að mestu.
  • Lokafrágangur á grassvæðum er eftir.

 

Að Bíldshöfða undanskildum er framkvæmdum að stærstum hluta lokið. Bíldshöfði verður tekinn í vor þegar við erum komin útúr frostakafla vetrar.

Nóvember/Desember

Vinna er í fullum gangi við að endurnýja umferðarljós á Höfðabakka. þann 28.11.2025 er staðan sú að nýjar umferðarljósastillingar hafa verið virkjaðar á eftirfarandi gatnamótum:

  • Höfðabakki/Bæjarháls
  • Höfðabakki/Vesturlandsvegur
  • Höfðabakki/Dvergshöfði

Gömlu umferðarjósastillingarnar eru enn í gangi á Höfðabakka/Stórhöfða og Höfðabakka/Bíldshöfða, sem veldur því að umferðarljósin eru ekki samstillt í augnablikinu. Stefnt er á að framkvæmdum ljúki fyrir áramót og að nýjar umferðarljósastillingar verði orðnar virkar þá.

Hver koma að verkinu?

Eftirlit

Kristján Ingi Gunnlaugsson, VSÓ Ráðgjöf

Verkefnastjóri Reykjavíkurborgar

Gunnar Atli Hafsteinsson

Verktaki

Krafla ehf
Last updated 24.06.2026