Fossvogsskóli

Grunnskóli, 1.-7. bekkur

Haðaland 26
108 Reykjavík

""

Skóladagatal Fossvogsskóla

Hér finnur þú skóladagatal Fossvogsskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.

Teikning af litríkum skólatöskum.

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Um Fossvogsskóla

Fossvogsskóli er hverfisskóli staðsettur í Fossvogsdalnum þar sem eru greiðar göngu- og hjólaleiðir í einu fallegasta útivistarsvæði borgarinnar; Elliðaárdalinn og Nauthólsvíkina. Nemendafjöldi er um 350 í 1.–7. bekk og starfsmenn eru rúmlega 50. 8.–10. bekkur er í Réttarholtsskóla.

Fossvogsskóli hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Hann er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar og verkefni um Heilsueflandi grunnskóla. Í skólanum er unnið með læsi á fjölbreytilegan máta og byggt er á teymiskennslu og samvinnu kennara. Fossvogsskóli vinnur í anda Uppbyggingarstefnu um uppeldi til ábyrgðar og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. 

Frístundaheimilið Neðstaland er starfrækt í Fossvogsskóla fyrir nemendur í 1.–4. bekk. Eldri nemendur fara í félagsmiðstöðina Bústaði sem staðsett er í Bústaðakirkju.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Fossvogsskóla er: Lína Dögg Halldórsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Skólastarfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Fossvogsskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira.

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.

Skólaráð Fossvogsskóla

  • Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, skólastjóri
  • María Helen Eiðsdóttir, aðstoðarskólastjóri
  • Helena Rósa Róbertsdóttir, skrifstofustjóri
  • Gísli Sigurðarson, kennari
  • Margrét Birna Garðarsdóttir, kennari
  • Kristín María Reynisdóttir, forstöðumaður Neðstalands
  • Karl Óskar Þráinsson, formaður Foreldrafélags Fossvogsskóla
  • Unnur Björnsdóttir, varaformaður Foreldrafélags Fossvogsskóla
  • Tindra Gná Daðadóttir, nemandi  
  • Emilía Ásgeirsdóttir, nemandi

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.

Skólahverfi Fossvogsskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Fossvogsskóla.

Teikning af húsum, bílum og hjóli.